Íbúðin er á annarri hæð. Frá íbúðinni er fallegt útsýni út yfir Faxaflóa að Esjunni. Í henni eru tvennar svalir og tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi auk þess sem útgegnt er á timburverönd frá öðru þeirra. Eldhúsið er vel búið með tveimur ofnum, vínkæli og stórum ísskáp. Íbúðin er skráð 165,4 fm og því til viðbótar er geymsla. Rúmgóð forstofa með gestasnyrtingu og fataskáp. Þvottaherbergi. Glæsileg stofa með gólfsíðum gluggum. Þaðan er gengið út á svalir þar sem horft er yfir höfnina og með útsýni til vesturs. Sjónvarpsstofa innaf aðalstofu. Íbúðinni fylgir stæði í aðgangsstýrðri bílageymslu, sem einungis er ætluð íbúðareigendum í Austurhöfn.
Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni.. Með íbúðum við Austurhöfn hafa ný viðmið verið sett í gæðum. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum auk annarra fastra innréttinga. Kvarts borðplötur við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju verður klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur, vínkælir og blöndunartæki.
Nánari upplýsingar:
Fold fasteignasala, Sóltúni 20, 105 Reykjavík. fold@fold.is / 552-1400.
Viðar 694-1401, Gústaf Adolf 895-7205, / Einar 893-9132 / Hlynur 624-8080 og Rögnvaldur 660-3452
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
07/12/2021 | 91.000.000 kr. | 217.000.000 kr. | 176.1 m2 | 1.232.254 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
101 | 219.9 | 125 | ||
101 | 141.9 | 89,9 | ||
101 | 117.5 | 129,9 | ||
101 | 169.2 | 91,9 | ||
101 | 125.9 | 149,9 |