BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 103, 810 Hveragerði. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi í Edenbyggð Hveragerði. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla. Smellið hér fyrir staðsetningu. ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 103, fyrsta hæð til vinstri. Íbúð 76,4 m² og geymsla 3,5 m² samtals 79,9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Í sameign er sér geymsla og vagna- og hjólageymsla.
Nánari lýsing: Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr alrými út á hellulagða verönd.
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, AEG sjálfhreinsandi blástursofn í vinnuhæð, spanhelluborð og þunn útdraganleg vifta sem fellur upp undir efri skáp. Stálvaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð LED lýsing undir efri skápum.
Hjónaherbergi er með fataskápum yfir heilan vegg.
Barnaherbergin eru tvö bæði með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi, sérmíðaður skápur fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni: Harðparket er á alrými og svefnherbergjum. og í stofu. Flísar á anddyri og baðherbergi.
Sér geymsla er í sameign í kjallara. Í sameign í kjallara er vagna- og hjólageymsla og inntaksrými. Lyftan fer niður í kjallara.
Nánar um húsið, T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Aldinmörk 8 er þriggja hæða fjölbýli, í húsinu eru 9 íbúðir, þjár á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með málm - og timburklæðningu.
Lyfta er í húsinu sem tengir kjallara og hæðirnar þjár. Sér inngangur er íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli.
Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota. Lóð er sameiginleg 654,1 m² leigulóð.
Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-6255.Stærð: Íbúð 76,4 m². Geymsla 3,5 m² Samtals 79,9 m².
Brunabótamat: 47.350.000 kr.
Fasteignamat: 52.350.000 kr.
Byggingarár 2019.
Byggingarefni: Steypa.