SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EFRI EÐA NEÐRI SÉRHÆÐ*
Fallegar og vel skipulagðar efri eða neðri sér hæðir með sér inngangi í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Góð verönd eða svalir út frá stofu. Neðri hæðum fylgir sérgarður efri hæðum fylgir sér þakverönd. Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Örstutt á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði, Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum.
Íbúðirnar eru vel skipulagðar með góðu alrými, tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
FRÁBÆRT VERÐAllar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir. GSM 777 4277Nánari lýsing:Íbúðirnar skiptast í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og góðum skápum. Eitt eða tvö svefnherbergi til viðbótar + auka baðherbergi.
Út frá stofunni á neðri hæð er góð verönd og lítill sér garður, en á efri hæð eru svalir og stórar einka þaksvalir. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Frábært verð og góð fjárfesting. Mikil uppbygging er á svæðinu og er þetta því góð framtíðarfjárfesting.
Verð:Neðri sér hæð. 2 svefnherbergi + tvö baðherbergi. Verð frá 139.900 Evrur. (ISK 20.200.000, gengi 1E=145ISK)Efri eða neðri sér hæð. 3 svefnherbergi + 2 baðherbergi. Verð frá 189.900 Evrur (ISK 27.500.000, gengi 1E=145ISK)
Aðeins örfáar íbúðir eftir. Til afhendingar um mitt ár 2023.Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.
Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
FASTEIGN Á SPÁNI - LJÚFUR LÍFSSTÍLLEitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður, allt að ISK60.000 á mann fyrir tvo, eða samtals allt að ISK120.000.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.
Eiginleikar: golf, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, ný eign, bílastæði, lokað svæði, sér garður, þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,