Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2026

Stuðlaskarð 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
138 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
760.145 kr./m2
Brunabótamat
91.600.000 kr.
Byggt 2021
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25104811
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna nýlega eign í einkasölu; Stuðlaskarð 15 í Hafnarfirði er lítið fjölbýlishús byggt árið 2021 af byggingafélaginu Bygg. Í húsinu eru 4 íbúðir, góð aðkoma, tvö bílastæði fylgja hverri eign.
Um er að ræða rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð með sér afnotareit í suður. Eignin er skráð 138 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er geymslan 11,8 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott, opið eldhús og stofur, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar auk geymslu á sömu hæð.
Nánari lýsing;
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum meðfram heilum vegg sem ná alveg upp í loft.
Stórt og opið alrými, tæpir 50 fm., rúma vel opið og vel búið eldhús, borðstofu og setustofu.
Eldhús er með spónlagðri innréttingu með Stonel Christal Chite náttúrusteini á bekk og eyjunni, góðu skúffu- og hirsluplássi og veglegri eyju með skúffum og skápum beggja vegna. Sérlega vönduð eldhústæki frá Siemens og AEG telja m.a. tvo ofna, innbyggða uppþvottavél, span-helluborð, ca 90 cm breitt.
Stofurnar eru rúmgóðar og bjartar enda gluggar á tvo vegu. Út frá borðstofunni er gengið út stóran og afgirtan pall með góðum skjólveggjum sem snýr í s-vestur.
Á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi;
Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum og tvö önnur herbergi bæði rúmir 10 fm. að stærð með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með stórum "walk-in" sturtuklefa, innbyggðum blöndunartæjum, upphengdu salerni, handlaug, innréttingu og skáp ásamt handklæðaofni.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Á gólfum er harðparket fyrir utan flísalögð votrými og forstofu, innréttingar eru frá Brúnás og náttúrusteinn í eldhúsi frá S. Helgasyni.
Á hæðinni er stór geymsla (11,8 fm)  sem eigninni fylgir, þar er gluggi, rafmagnstengi og hillur, þetta rými gæti mögulega nýst sem skrifstofa eða vinnuherbergi.
Á jarðhæð er rúmgóð sameiginleg geymsla m.a. fyrir hjól og vagna, gott aðgengi frá lóðinni og jarðhæð hússins. Húsið er klætt viðhaldsléttri klæðningu, lóðin umhverfis húsið er fullbúin sem og rúmgott bílastæði fyrir framan húsið þar sem búið er að draga í rafmagn og auðvelt að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Þetta er vönduð eign í fjölskylduvænu um hverfi þar sem stutt er í fallega náttúru.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Valhöll fasteignasala ehf.
http://valholl.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Blikaás 50
Bílskúr
Skoða eignina Blikaás 50
Blikaás 50
221 Hafnarfjörður
206 m2
Parhús
514
689 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunhólar 7
Skoða eignina Hraunhólar 7
Hraunhólar 7
210 Garðabær
119,5 m2
Fjölbýlishús
312
707 þ.kr./m2
84.500.000 kr.
Skoða eignina Seinakur 3
Bílastæði
Opið hús:11. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Seinakur 3
Seinakur 3
210 Garðabær
141,3 m2
Fjölbýlishús
423
955 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V3 íb 702
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:07. nóv. kl 13:00-14:00
Vesturvin V3 íb 702
101 Reykjavík
154,2 m2
Fjölbýlishús
312
1524 þ.kr./m2
235.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin