Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2026

Jöfursbás 3c

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
55.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
1.085.145 kr./m2
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2541148
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður-svalir
Upphitun
gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir einstaklega vandaðar og vel hannaðar íbúðir við Jöfursbás 3c, Reykjavík - íbúð 0507 er 2ja herbergja 55,2 fm íbúð fimmtu og efstu hæð í lokuðu stigahúsi með 7,4 fm þaksvölum, geymslan er 8,2 fm.  í kjallara.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með góðu svefnherbergi.  austur svalir út frá stofu með útsýni til sjávar.Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Harðviðarval og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi

Nánari lýsing íbúðar
Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp 
Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts.  Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með quartz stein á borðplötu.
Stofa með góðum glugga og útgengt á svalir.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með quartz borðplötu.  Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Svefnherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 24 talsins, mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 52,3 fm-171,4  m2  


// VILDARKORT LINDAR // sem allir viðskiptavinir Lindar fá afhent við kaupsamning
Við vekjum sérstaka athygli á því að allir kaupendur hjá Lind fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar, en þeir eru:
Parki (gólfefni), Z brautir og gluggatjöld, Húsgagnahöllin, Betra bak, Dorma, Flügger litir, S. Helgason steinsmiðja, Vídd og Húsasmiðjan.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni. Strönd þar sem hægt er að fara á í fargufu og sæþotuleiga.


Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 507
Jöfursbás 3C íb 507
112 Reykjavík
55.2 m2
Fjölbýlishús
211
1085 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 409
Jöfursbás 3C íb 409
112 Reykjavík
131.8 m2
Fjölbýlishús
513
948 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 408
Jöfursbás 3C íb 408
112 Reykjavík
94 m2
Fjölbýlishús
312
956 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 407 - HMS HLUTDLÁN
Jöfursbás 3C íb 407 - HMS HLUTDLÁN
112 Reykjavík
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
1012 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin