** Opið hús fimmtudaginn 27. ágúst frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á fallegum útsýnisstað við Stórakrika 25 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 226,7 m2, þar af einbýli 186,1 m2 og bílskúr 40,6 m2.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, gang/hol, geymslu, forstofu, eldhús, borðstofu, stofu og bílskúr. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, verslun og alla helstu þjónustu. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu og hellulögð verönd í suðurátt.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sentNánari lýsing:Forstofa er með miklu skápaplássi og flísum á gólfi.
Gangur/hol er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er mjög rúmgott með parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi með flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er inn af forstofu, mjög rúmgott með flísum á gólfi. Úr herberginu er útgengt út á hellulagða verönd fyrir framan húsið.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, með vegghengdu salerni, handklæðaofni, sturtu og innréttingu. Gluggi er á baðherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu, flísalögð í hólf og gólf, með lítillii innréttingu og vegghengdu salerni. Gluggi er á gestasnyrtingu.
Stofa og borðstofa er í rúmgóðu opnu rými með mikilli lofthæð og innbyggðri lýsingu. Parket á gólfi. Úr rýminu er útgengt út á hellulagða verönd í suðurátt. Mjög fallegt útsýni er úr stofu.
Eldhús er opið inn í stofu og borðstofu. Í eldhúsi er hvít innrétting með eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Geymsla er inn af á gangi/holi með flísum á gólfi (þvottahús á teikningu). Úr geymslu er innangengt inn í bílskúrinn.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi, rafmagns bílskúrshurðaropnara. Rennandi vatn, hiti og rafmagn. Góð L-laga innrétting með vaski og helluborði er í bílskúr. Tengi fyrir þvottavél er í bílskúr. Stórir gluggar eru í bílskúr.
Verð. kr. 179.000.000,-