LAUS VIÐ KAUPSAMNING.- BORGARTÚN 30A. GLÆSILEG RÚMGÓÐ 3JA HERBERGJA, 149 FM ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í GÓÐU ÁLKLÆDDU LYFTUHÚSI ÞAR SEM LYFTAN OPNAST INN Í ÍBÚÐINA. GÓÐAR INNRÉTTINGAR, SUÐURSVALIR, SÉRBÍLASTÆÐI Í BÍLGEYMSLU.Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali - kynna: Glæsilega 149 fm íbúð í vönduðu viðhaldsléttu fjölbýlishúsi á rólegum stað við Borgartún í Reykjavík.Skipulag íbúðarinnar er þannig að hún er með aðkomu beint úr lyftu hússins inn í forstofu íbúðarinnar og einnig er gengt um sameiginlegan stigagang inn í forstofuna. Íbúðin skiptist í forstofu, þar er gengið inn í eldhús og inn í stóra stofu/borðstofu. Eldhús er opið inn í stofu, mjög stóra samliggjandi borðstofu og setustofu, sólstofu út af borðstofu, gang, snyrtingu með sturtu, stórt herbergi og gott hjónaherbergi. Innaf hjónaherbergi er gott fataherbergi, stórt baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi með glugga. Úr sólstofu er gengt út á góðar suðvestursvalir. Lyfta gengur niður í kjallarann og þar er sérgeymsla íbúðarinnar og einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Innangengt er úr kjallara í bílageymsluna.
Ástand íbúðarinnar er mjög gott. Innréttingar eru allar upprunalegar í góðu ástandi og vandaðar. Í eldhúsi er góð eikarinnrétting, skápar eru í forstofu, snyrtingu og herbergi. Fataherbergi er með skápum. Í baðherbergi er innrétting og hillur í þvottaherbergi. Baðherbergi og snyrting eru flísalögð í hólf og gólf. Gólfefni eru flísar á forstofu, sólstofu, og þvottaherbergi. Vandað parket er á eldhúsi, stofum, gangi og herbergjum. Ástand sameignar er mjög gott. Brunaviðvörunarkerfi tengt öryggismiðstöð er í húsinu, mynddyrasími, loftskiptikerfi, bæði inn- og útsog.
Húsið er einangrað að utan og með álklæðningu og þarfnast því lágmarks viðhalds. Húsið var byggt árið 2003 og var sérstök áhersla lögð á hljóðvist eða hljóðeinangrun, td. tvöfalt lag er í gólfum og tvöfalt lag af gifsplötum í veggjum.
Fasteignamat íbúðar ársins 2024 verður kr 101.550.000,-
Ath. Seljendur hafa ekki búið í íbúðinni og geta því ekki uppfyllt upplýsingaskyldu nema að takmörkuðu leyti.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, s. 895-2115 - snorri@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, viltu selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 22 ára samfeldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hafið samband í síma 895-2115 eða snorri@valholl.is.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - RÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO 2015 til 2021, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR 2017-2021.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak