Gimli fasteignasala og Bárður H Tryggvason sölustjóri kynna: Holtagerði 18, 200 Kópavogur.Eignin Holtagerði 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-2430, birt stærð 133.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Íbúðarhlutinn er skráður 108,3 fm og bílskúrinn 24,8 fm.NÁNARI LÝSING:Eignin að Holtagerði 18 er fjögurra herbergja vel skipulögð neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr á góðum stað í vesturbæ Kópavogs.
Sérinngangur er í íbúðina.
Lýsing:Forstofa með skáp.
Barnaherbergin eru 2 og ágætlega rúmgóð, skápur í öðru herberginu.
Hjónaherbergið er sérlega rúmgott með skáp.
Eldhúsið er með endurnýjaðri innréttingu og borðkrók. Nýlegur háfur og ofn. Gaseldavél.
Stofan er rúmgóð með útgengi á góða timburverönd í suður.
Baðherbergið er flísalagt með sturtu og góðri innréttingu, gluggi á baði.
Þvottahús er innan íbúðar með glugga og geymsla innaf því.
Harðparket er á flestum gólfum íbúðar.
Bílskúrinn stendur austanmegin við húsið ásamt öðrum bílskúr.
Nýlegir gluggar og gler í stofu.
Nýlegar flísar í eldhúsi.
Sameiginlegur kjallari er undir húsinu sem hægt er að ganga inní innanfrá sem og að utan. Ekki er full lofthæð í geymslunni, þarf að skipta um hurðina þar sem ganga.
Nýleg hurð er í bílskúrnum. Rafmagn og hiti eru í honum en það þarf að athuga með vatns og hitalagnir í bílskúr. Hefur ekki virkað og þarf að laga. Ekki er starfrækt húsfélag í húsinu.Niðurlag:
Vel skipulögð eign á frábærum stað í vesturbæ Kópavogs.Nánari upplýsingar veitir: Bárður H Tryggvason sölustjóri tölvupóstur bardur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.