Skráð 29. jan. 2026

Bergþórshvoll

Jörð/LóðSuðurland/Hvolsvöllur-861
225,584.8 m2
Verð
256.000.000 kr.
Fermetraverð
1.135 kr./m2
Fasteignamat
5.300.000 kr.
Brunabótamat
189.550.000 kr.
Fasteignanúmer
2192934
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Gallar
Húsakostur þarfnast áframhaldandi viðhalds.
Kvöð / kvaðir
Kvöð um umferðarrétt ferðamanna
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028.

BERGÞÓRSHVOLL Í RANGÁRÞINGI EYSTRA.
Um er að ræða jörðina Bergþórshvol með landnúmerinu L163930.  Heildarlandstærð er talin vera rúmlega 300 hektarar, þar af er ræktað land um 20 hektarar.  Landið er valllendi og mýrar.  Það er allt gróið og grasgefið og hentar vel til beitar, Land jarðarinnar er afmarkað með skurðum og girðingum.  Á landinu er malarnáma og laxveiðiáin Affall rennur á jarðarmörkum og á Bergþórshvoll  17,1% veiðiréttarinns.  Jörðinn fylgja einnig rekahlunnindi, með aðgengi að fjöru og hún gæti hentað vel til gæsaveiða. Á staðnum er víðsýnt og fallegt útsýni til allra átta, m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Vestmannaeyja.

Á jörðinni eru eftirtaldar húseignir.

Íbúðarhús á tveimur hæðum byggt árið 1973, með síðari tíma stækkun stærð 477,9 fm.  Neðri hæðin er byggð úr steinsteypu og er klædd með steniklæðningu.  Efri hæðin er undir súð, hún byggð úr timbri og er klædd með járni og timbri.  Hluti neðri hæðar hefur verið innréttaður sem íbúð, sem nýtt er í útleigu til ferðamanna.  Bílskúr er áfastur húsinu.  Hann er með kjallara sem er notaður sem vélaskemma.  Á neðri hæð hússins er:  Anddyri með flísum á gólfi.  Eldhús með flísum á gólfi og vandaðri innréttingu.  Þvottahús rúmgott með flísum á gólfi og góðum innréttingum.  Salerni með flísum á gólfi og geymsla með flísum á gólfi.  Af neðri hæðinni liggur parketlagður stigi upp á þá efri.  Þar er:  Stofa með parketi á gólfi.  Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, stórri sturtu, hornbaðkeri og innréttingu.  Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og skápum.  Húsið er kynt með rafmangi, gólfhiti er á efri og hluta af neðri hæð.  Við húsið er timburverönd með skjólveggjum.

Gestaíbúðin er með sér inngangi og telur:  Anddyri með harðparketi á gólfi.  Sambyggða stofu og eldhús með harðparketi á gólfi og góðri innréttingu.  Tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfum.  Báðum herbergjum fylgir sérbaðherbergi með flísum á veggjum og gólfum, sturtum og innréttingum.  Úr öðru herberginu er hurð út á verönd sem eru við húsið.  Húsgögn geta fylgt  með við sölu.Í rekstrarleyfi er heimiluð gisting fyrir 6 manns.

Bílskúrinn er steyptur.  Hann er með innkeyrsludyrum, sem og vélageymslan í kjallara hans.

Útihús:
Steyptur sökkull og plata 1948, stærð 56,9 fm
Garðávaxtageymsla byggð 1962, stærð 50 fm.

Jörðin er seld án geiðslumarks, bústofns og véla.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is
Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang gudmundur@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
22,500 m2
Fasteignanúmer
2192934
Húsmat
4.750.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
4.750.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Fasteignanúmer
2192934
Húsmat
162.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
162.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 1948
5.7 m2
Fasteignanúmer
2192934
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
1.185.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.185.000 kr.
Brunabótamat
5.110.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1962
5 m2
Fasteignanúmer
2192934
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
1.645.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
1.645.000 kr.
Brunabótamat
7.090.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1973
47.8 m2
Fasteignanúmer
2192934
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
66.800.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
66.800.000 kr.
Brunabótamat
177.350.000 kr.
Matsstig
8 - Í notkun
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin