Jófríðarstaðavegur 7, 220 Hafnarfirði, eða Blómsturvellir er einstakt og fallegt 7 herbergja einbýli á þremur hæðum með stórum og rótgrónum garði á góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar. Um er að ræða 164,3 fermetra timburhús sem skiptist í 107,5 fermetra íbúðarrými á jarðhæð, 39,3 fermetra rými í kjallara og 17,5 fermetra íbúðarrými í risi. Upprunaleg eign er frá 1905 en árið 1987 var byggt við húsið. Eignin stendur á 354 fermetra glæsilegri og gróinni hornlóð.
Þá fylgir eigninni lítil 5,2 fermetra útigeymsla sunnan við hús, sem ekki telur í heildarfermetratölu eignarinnar.
Eignin er skráð skv. fasteignaskrá HMS alls 164,3 fm | Fasteignamat 2024 er 95.850.000,-
Nánari lýsing:
Jarðhæð: Gengið er inn í gamla húsið um aðalinngang norðan megin húss. Byggt var yfir útitröppur að aðalinngangi um 1987.
Anddyri: Komið er inn í anddyri hvaðan gengið er inn í aðalíbúð ásamt því að þar eru stigar að kjallara og risi. Parket á gólfi.
Hol: Frá anddyri er gengið inn í lítið hol þaðan sem gengið er inn í eldhús og borðstofu. Parket á gólfi
Eldhús: Ágæt innrétting með góðu skápaplássi. Pláss fyrir lítið eldhúsborð. Parket á gólfi.
Borðstofa: Frá eldhúsi er opið inn í borðstofu. Fallegir panelklæddir veggir og parket á gólfi.
Stofa: Frá borðstofu er gengið inn í stofu sem er hluti af viðbyggingu sem byggð var við húsið árið 1987. Teppi á gólfum og fallegir gluggar til norðurs.
Sólskáli: Frá stofu til suðurs er gengið niður í fallega upphitaða sólstofu. Hellur á gólfum.
Svefnherbergi I: Frá stofu til austurs er lítill gangur þaðan sem gengið er inn í svefnherbergi. Fataherbergi inn af svefnherbergi og parket á gólfum.
Baðherbergi: Frá litla gangi er einnig gengið inn í rúmgott baðherbergi með góðri innréttingu, baðkari og salerni. Flísar í hólf og gólf.
Geymsluloft: Frá litla gangi er hægt að ganga upp í geymsluloft sem er fyrir ofan svefnherbergi og baðherbergi
Rishæð: Frá anddyri á jarðhæð í eldra húsi er gengið upp stiga að risi.
Svefnherbergi II: Komið er upp í fallegt herbergi í risi. Loft og veggir panelklætt, teppi á gólfum.
Svefnherbergi III: Inn af svefnherbergi II er gengið inn í svefnherbergi III. Góðir skápar og parket á gólfum.
Kjallari: Frá anddyri er gengið niður nokkuð brattan stiga niður í kjallara. Lofthæð um 2 metrar.
Salerni: Við hlið stiga er lítið salerni. Málað gólf.
Þvottahús: Frá stiga er opið inn í þvottahús. Steypt og málað gólf.
Geymslur: Til hliðar frá þvottahúsi eru 2 rúmgóðar geymslur. Steypt og málað gólf.
Inngangur: Sér inngangur er í kjallara og er þá gengið inn í þvottahús við hlið stiga.
Lagnakjallari: Undir allri viðbyggingunni er lagnakjallari.
Lóðin: Er samtals 354 fermetrar, mjög snyrtileg og gróin lóð allt umhverfis húsið.
Hér er um að ræða einstaka eign sem staðsett er á afar góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar. Stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang fasteignir@procura.is eða í síma 497 7700
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Opinber gjöld við kaup: Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.