Hrafnkell á Lind kynnir fallegt endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Eignin er í raðhúsahverfi fyrir 60 ára og eldri við Hrafnistu í Reykjavík.
Virkilega gott skipulag er á eigninni sem er opin og björt með mikilli lofthæð í alrými. Verönd og garður að framan sem er lokaður með trjágróðri og er einstaklega skjólsæll, og að aftan er verönd þar er möguleiki er á að byggja sólskála.
Góðu og reglulegu viðhaldi hefur verið sinnt við Jökulgrunn á ytra byrði húsa og lóð og er öll aðkoma hin snyrtilegasta. Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Ekki verður haldið opið hús bóka þarf skoðun.Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, 2 svefnherbergi, hol, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Nánari lýsing:Anddyrið er flísalagt með góðum skápum.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, fallegri innréttingu með miklu skápaplássi og vinnurými, bakarofni í góðri vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og góður eldhúskrókur undir glugga.
Stofan og
borðstofan mynda opið og bjart rými með parketi á gólfi og aukinni lofthæð. Stór og mikill horngluggi sem hleypir góðri birtu inn í rýmið. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með innbyggðu salerni, snyrtilegri baðinnréttingu og góðri walk-in sturtu.
Þvottahúsið er á milligangi sem liggur að bílskúr, með innréttingu, dúk á gólfi og skolvask.
Bílskúrinn, 26,8fm.,er með góðri lofthæð og millilofti á fremri hluta, með rafdrifinni bílskúrshurð, áföstum hillum og skáp. Útgengi í garð.
Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslu.
Vandfundin eign á friðsælum stað við Laugardalinn.
Endurnýjun við Jökulgrunn 28:
- Neysluvatnslagnir og settur varmaskiptir
- Ofnar (bílskúr og þvottahús undanskilinn)
- Sett upp hleðslustöð í bílskúr
- Mynddyrasími / Tímastillt útiljós
- Tenglar og slökkvarar endurnýjaðir
- Sett upp sorptunnuskýli
- Allt í eldhúsi, þvottahúsi og að hluta á baðherbergi
- Gler að undanskIldum 4 litlum opnanlegum gluggum
Samþykkt hefur verið að mála útveggi í sumar á húslengjunni sem greiðist af seljanda.
Jökulgrunn 28, 104 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 201-7525 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Jökulgrunn 28 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-7525, birt stærð 119.8 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.