Skráð 27. jan. 2026

Garðhús/ Hafnagata 30

FjölbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær/Hafnir-233
170.1 m2
5 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
410.935 kr./m2
Fasteignamat
50.950.000 kr.
Brunabótamat
86.750.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1929
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2094333
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Raflagnir
Endurnýjað sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Frárennslislagnir
Endurnýjað sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Þak
Þarnast endurnýjunar
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýuppgert einbýlishús í sveitasælu í Höfnum á Reykjanesi.
Húsið var gert upp á árunum 2021–2024, bæði að utan sem innan. Eignin stendur á eignalóð og er byggt árið 1929 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. 
Í Húsinu er einstakt útsýni yfir hafið og er staðsetningin mikil náttúruperla.

-  Mikið endurbætt einbýlishús 
-  Rúmgóður bílskúr með möguleika á að breyta í aukaíbúð
-  Friðsæll og fallegur staður

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson, Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.verdmat.is
www.eignavakt.is
Góð ráð fyrir kaupendur og seljendur

Neðri hæð:
Gengið er inn í forstofu þar sem inngangur er í alrými og stigi liggur upp á efri hæð. Á jarðhæð er hiti í gólfi.
Alrými: Björt stofa og borðstofa með gluggum sem gefa rýminu fallega birtu.
Eldhús: Svört innrétting með borðplötu og skúffuhöldum úr hnotu. Eldavél og uppþvottavél.
Baðherbergi: Endurnýjað 2023–2024. Baðkar, sturta, vaskur, hillur og tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Hiti í gólfi.

Efri hæð:
Á efri hæðinni er stórt alrými sem skiptist í tvö aðskilin svæði. Fjölsskyldurými og tvö svefnherbergi. Fjölskyldurýmið er rúmgott og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika — til dæmis væri einfalt að breyta því og bæta við herbergjum. 
Upprunaleg viðargólf. Svalir eru á stigapalli.
Rýmið er bjart með útsýni til hafs.

Ris:
Risið er með 3ja metra lofthæð og býður uppá mikla möguleika, svo sem auka svefnaðstöðu, stofu eða vinnurými. Útsýni yfir hafið og út í Eldey.
Upprunaleg viðargólf endurbætt og gert upp.
Í risi er útgengt um svalahurð.

Bílskúr:
Bílskúrnum hefur verið breytt í vinnustofu og gerður upp að innan sem utan. Rafmagn og lagnir endurnýjaðar. Þak einangrað og nýjir gluggar.
Búið er að útbúa salernisaðstöðu og gert ráð fyrir eldhúsi.
Möguleiki að útbúa aukaíbúð.
Gott geymsluloft er í bílskúrnum.

Eftirfarandi endurbætur hafa verið gerðar 2021-2025:
- Hús einangrað að utan.
- Skipt um alla glugga og hurðir (Rehau PVC)
- Upprunaleg viðargólf gerð upp
- Nýjar ofnalagnir og hitaveitugrind
- Frárennslislagnir endurnýjaðar
- Ný gólfplata steypt
- Gólf á neðri hæð flotuð og lökkuð
- Múrað að innan og utan
- Ljósleiðari lagður
- Baðherbergi endurnýjað
- Eldhús endurnýjað
- Ný rafmagnstafla og skipt um rafmagnslagnir - Heitt og kalt vatn lagt inn í bílskúr
- Húsið málað að utan og þak málað á bílskúr.
- Loft panelklætt
- Rofar og tenglar endurnýjaðir (Bakelite)
- Gert ráð fyrir 3 fasa rafmagni fyrir hleðslustöð - Lagt dren kringum húsið

Lóð:
Rúm 1800 fm. eignarlóð. Stór grænmetisgarður og einangraður hæsnakofi eru á lóðinni. Lóðin býður uppá mikla möguleika til ræktunar og útiveru.

Staðsetning:
Hafnir eru hluti af Reykjanesbæ og í 10 km akstri frá helstu þjónustu.
Í Höfnum búa um 120 manns.
Hafnir eru í miklu návígi við hafið og margar fallegar fjörur og strendur í kring. Í Höfnum ríkir mikil kyrrð og er bærinn umvafinn miklu og fjölbreyttu fuglalífi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/05/202118.050.000 kr.27.000.000 kr.170.1 m2158.730 kr.
09/11/201711.550.000 kr.19.000.000 kr.170.1 m2111.699 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1950
5.4 m2
Fasteignanúmer
2094333
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.250.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kirkjuvogur 11
Bílskúr
Skoða eignina Kirkjuvogur 11
Kirkjuvogur 11
233 Reykjanesbær
172.3 m2
Einbýlishús
714
421 þ.kr./m2
72.500.000 kr.
Skoða eignina Kjóaland 14
Bílskúr
Opið hús:15. feb. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kjóaland 14
Kjóaland 14
250 Garður
124.5 m2
Parhús
312
561 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Heiðarvegur 21A
Bílskúr
Skoða eignina Heiðarvegur 21A
Heiðarvegur 21A
230 Reykjanesbær
111.6 m2
Einbýlishús
413
626 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 3
Bílskúr
Skoða eignina Sóltún 3
Sóltún 3
230 Reykjanesbær
137.1 m2
Fjölbýlishús
311
510 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin