Kasa fasteignir 461-2010.Margrétarhagi 3. Glæsileg nýleg íbúð í parhúsi í Hagahverfi á Akureyri. Húsið er staðsteypt með einhalla þaki, steyptu bílaplani og innbyggðum bílskúr.
** Eignin verður sýnd mánudaginn 23. nóvember kl 16:15-16:45 - Smelltu hér og skráðu þig á sölusýningu **
** Athugið ef engin skráning hefur borist fyrir kl 12:00 á sýningardag fellur sölusýningin niður **Eignin er skráð 156,3 fm og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi með baðherbergi, tvö barnaherbergi, þvottahús og bílskúr ásamt því að yfir eldhúsi er vinnurými sem er ekki í skráðum fermetrum og stór geymsla á háalofti.Forstofa: Er með flísum á gólfi.
Stofa: Er með mikilli lofthæð og innfeldri lýsingu, gólfsíðir gluggar eru á rýminu og rennihurð út á steyptan pall.
Eldhús: Góð innrétting með innbyggðum ísskáp og frysti, bakaraofn og combi ofn í vinnuhæð, tækjaskáp og rúmgóðri eyju. Gott bekkjarpláss. Bekkjarplötur eru steyptar.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluti af veggjum. Rúmgóður sturtuklefi með innmúruðum tækjum. Frístandandi baðkar og vegghengt salerni.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur. Inn af hjónherbergi er
baðherbergi með sturtu og vegghengdu salerni.
Barnaherbergi: Eru tvö í eigninni, bæði með parketi á gólfum og fataskápum.
Þvottahús er hluti af bílskúr, þar er góð innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, gott skápa og bekkjarpláss.
Bílskúr er með lökkuðu gólfi og rafdrifinni bílskúrshurð með gönguhurð í. Geymsluhilla er yfir hluta af bílskúr. Seljandi klárar að klæða loft í bílskúr fyrir afhendingu.
- Sérsmíðaðar innréttingar og fataskápar frá Brúnás. Flísar eru frá Vídd, parket er frá Harðviðarvali og hurðar frá Birgisson.
- KNX stjórnkerfi
- Loftskiptikerfi.
- Loftadúkur í flestum loftum.
- Stéttar í kringum húsið eru steyptar ásamt steyptum skjólveggjum.
- Allar steyptar stéttar og plön eru með snjóbræðslu.
- Geymsluskúr fyrir framan hús er óeinangraður.
- Virkilega vönduð og falleg eign.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.