Gimli fasteignasala kynnir: Einstaklega fallegt raðhús í nýlegu hverfi í Kambalandi, Hveragerði.
Eignin er laus núna þegar og afhent við kaupsamning
Um er að ræða 94,9 m2 nýlegt raðhús sem skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús, svefnherbergi og geymsla með góðum glugga sem nýtist sem annað svefnherbergi. - Eignin var byggð 2021
- Glæsilegt útsýni úr stofunni
- Verönd í bakgarðinumNÁNARI LÝSING:Forstofa: Með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Bjart með U-laga innréttingu, með áfastri eyju, harðparket á gólfi.
Stofa / Borðstofa: Rúmgóð stofa í opnu rými með eldhúsi, harðparket á gólfi, og útgengt út á verönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Geymsla/svefnherbergi: Skráð sem geymsla á teikningum en mjög gott (9,1 fm) með stórum glugga og nýtist sem svefnherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta. Sturtugler, upphengd baðinnrétting með spegli, upphengt klósett og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísalagt gólf, innrétting með vaski þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Lagnagrind er þvottahúsinu. Gólfhiti er í öllum rýmum.
Garður: Fyrir fram hús er stórt rúmgott bílastæði. Fyrir aftan hús er afgirt verönd ásamt grasbletti.
Góð staðsetning í nýju hverfi sem er í Kambalandi, Hveragerði. Stutt í óspillta náttúru og gönguleiðir.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU S. 570-4800 EÐA ELLERT S. 661-1121 ellert@gimli.is Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust.
Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.