Garðatorg Eignamiðlun. Sölumaður Sigurður s. 8983708Útsýnisíbúð. Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 5. hæð í Sjálandinu í Garðabæ. Íbúðin er 82 m², björt og rúmgóð, með fallegu útsýni til Bessastaða og Snæfellsjökuls. Svalir með svalalokun snúa til vesturs. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu fylgir eigninni.
Eignin er laus við kaupsamning.Nánari lýsingForstofa: Með fataskáp. Við hlið forstofu er ágætt vinnuherbergi.
Stofa og borðstofa: Bjartar og rúmgóðar með fallegu útsýni til vesturs og norðurs. Útgengt er á svalir með svalalokun sem snúa til vesturs.
Eldhús: Opið og bjart með góðri innréttingu og skápaplássi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi: Með innréttingu og sturtu.
Þvottahús: Gott sérþvottahús með innréttingu og hillum.
Geymsla: Sérgeymsla er í kjallara.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði merkt B005.
Sameign: Snyrtileg sameign og lyfta í húsinu.
Um er að ræða íbúð fyrir 60 ára og eldri. Innangengt er úr húsinu í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ, þar sem fram fer fjölbreytt félags- og tómstundastarf. Þar er jafnframt hægt að fá heitan mat í hádeginu og aðra hressingu alla virka daga gegn vægu gjaldi.
Í húsinu er einnig rúmgóður samkomusalur sem íbúar geta leigt gegn vægu gjaldi.
Við húsið er einstaklega falleg og vel hirt lóð. Góðar gönguleiðir eru allt í kring.
Virkilega falleg og vel skipulögð eign með góðu útsýni á eftirsóttum stað í Sjálandinu í Garðabæ.
Áhugasamir vinsamlegast pantið skoðun hjá Sigurði í síma 898-3708.