Fasteignaleitin
Skráð 30. okt. 2023

Borgarhólsbraut 7

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
129.6 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
78.500.000 kr.
Fermetraverð
605.710 kr./m2
Fasteignamat
78.650.000 kr.
Brunabótamat
64.100.000 kr.
Mynd af Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Framkvæmdastjóri
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2208346
Landnúmer
169737
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegt
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfallt gler
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Sólpallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Kaupendum er bent á að skipulag hússins er ekki samkvæmt teikningum hússins. Geymsla (bjálkahús) er á lóðinni sem eru ekki skráð hjá skipulagsyfirvöldum.  
Borgarhólsbraut, Vaðnesi – 5.500 fm eignarland, heitt vatn og miklar endurbætur.

Fasteignaland kynnir: Vel viðhaldið og mikið endurnýjað sumarhús staðsett á fallegri, kjarrivaxinni skóglóð á Vaðnesi. Um er að ræða lokað svæði með rafmagnshliði sem tryggir næði og ró. Upphaflegt hús var byggt árið 1972 en stækkað árið 2000. Á síðustu árum hefur húsið fengið mikið og vandað viðhald þar sem nútíma þægindi mæta notalegri sumarhúsastemningu.

Nánari lýsing: Hjarta hússins er bjart og opið alrými þar sem eldhús, stofa og borðstofa flæða saman. Eldhúsið var stækkað verulega árið 2021. Þar er nú stór eldunareyja, mikil skápainnrétting með granít borðplötum og vönduð tæki, þ.m.t. vínkælir, spanhelluborð og innbyggður ísskápur. Stofan er opin og rúmgóð með fallegri frístandandi kamínu (sett upp 2022). Svefnherbergin eru þrjú, þar af var eitt þeirra áður tvö minni herbergi. Hjónasvítan er með nýlegri rennihurð þaðan sem hægt verður að ganga út á viðarverönd sem vinna er hafin við. Sér baðherbergi þar sem er tengi fyrir þvottavél. Baðherbergi og þvottaaðstaða: Stóra baðherbergi hússins var endurnýjað að fullu árið 2025 með nýjum tækjum og innréttingum og í dag er innangengt í það og útgengt að heitum potti.

Lóð og ytra byrði: Húsið stendur á stórri 5.500 fm eignarlóð sem veitir mikið skjól með vöxnum greni-, furu- og birkitrjám sum þeirra yfir 50 ára gömul. Stór og góð viðarverönd er við húsið með heitum potti sem hægt er að nýta allan ársins hring. Búið er að steypa niður hólka til undirbúnings fyrir stækkun á palli í suðaustur, sem mun nýta kvöldsólina mun betur. Á lóðinni er einnig um 10 fm frístandandi áhaldageymsla (bjálkahús)  sem er ekki í skráðum fermetrum.

Helstu framkvæmdir og endurbætur síðustu ára:
   *   2025: Stóra baðherbergið endurnýjað að fullu (ný tæki og innréttingar). Hólkar settir niður fyrir stækkun á palli.
   *   2024: Ný heimreið lögð alveg að húsi (áður var 90 m ganga að húsinu frá bílastæði).
   *   2023: Ný einangrun sett í gólf eldri hluta og sperrur styrktar. Allt gólfefni í húsinu endurnýjað (hlýlegt hnotu harðparket). Þakjárn á eldri hluta endurnýjað.
   *   2022: Gluggar í stofu endurnýjaðir. Rafmagnstafla endurnýjuð. Kamína sett upp í stofu. Föst skápainnrétting sett upp í stofu.
   *   2021: Eldhús stækkað og endurnýjað, granít á borðum. Ofnalagnir í eldri hluta endurnýjaðar (ofnar einnig endurnýjaðir að hluta).

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 30.000.á ári.

Hér er um að ræða virkilega vandaða eign á eftirsóttum stað sem heillar á öllum árstíðum. Hús sem þetta koma afar sjaldan í sölu. 

Upplýsingar gefa: 
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali. s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Heimir H. Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali. s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
03/05/202141.150.000 kr.46.000.000 kr.129.6 m2354.938 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 1
Skoða eignina Baughamar 1
Baughamar 1
221 Hafnarfjörður
73.4 m2
Fjölbýlishús
211
884 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 1 íb305
Bílastæði
Baughamar 1 íb305
221 Hafnarfjörður
90.9 m2
Fjölbýlishús
312
835 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 1 íb205
Bílastæði
Baughamar 1 íb205
221 Hafnarfjörður
90.7 m2
Fjölbýlishús
312
826 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 1
Bílastæði
Opið hús:09. apríl kl 17:00-17:30
Skoða eignina Baughamar 1
Baughamar 1
221 Hafnarfjörður
95.3 m2
Fjölbýlishús
112
828 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin