Fasteignaleitin
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 18. ágúst 2026

Suðurvangur 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
115.5 m2
4 Herb.
6 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.900.000 kr.
Fermetraverð
631.169 kr./m2
Brunabótamat
62.400.000 kr.
Byggt 1969
2. hæð
Svalir
Fasteignanúmer
20799752
Húsgerð
Fjölbýlishús

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@landmark.is kynna:

Snyrtilega 115,5 fm íbúð á 2. hæð við Suðurvang 12 í Hafnarfirði. Skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt, útbúin hafa verið þrjú auk svefnherbergi í íbúðinni og er með sex svefnherbergjum í dag. Tvennar svalir, sér þvottahús innan íbúðar og sér geymsla í kjallara. 

Eignin skiptist í anddyri, tvo ganga, eldhús, þvottaherbergi, stofu og baðherbergi. Íbúðin er upphaflega með þremur svefnherbergjum en útbúinn hefur verið auka gangur og þrjú auka herbergi. 
Birtar stærðir: Íbúð 115,5 fm (merkt 030201) samtals 115,5 fm. Sér geymsla í kjallara, skráð í eignaskiptayfirlýsingu 5,7 fm. 

Gólfefni er parket, korkur, flísar, og dúkur. Fataskápur í forstofu og í þremur herbergjum. 
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu, bakarofni og helluborði, gufugleypi, tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur innst í eldhúsi.
Stofa er fremst í íbúð. 
Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, neðri skápa innréttingu með vaski og áföstum hillum. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf salerni, hvítri baðinnréttingu og baðkari með sturtu yfir.
Sex herbergi, þar af þrjú sem stúkuð hafa verið af stofu. 
Sér geymsla í kjallara. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. 

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 3 íb. 502
Bílastæði
Baughamar 3 íb. 502
221 Hafnarfjörður
95.2 m2
Fjölbýlishús
32
857 þ.kr./m2
81.600.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvellir 8A
Skoða eignina Kirkjuvellir 8A
Kirkjuvellir 8A
221 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
413
714 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 20 íb. 205
Áshamar 20 íb. 205
221 Hafnarfjörður
109 m2
Fjölbýlishús
423
733 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðvangur 8
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:19. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Breiðvangur 8
Breiðvangur 8
220 Hafnarfjörður
113.1 m2
Fjölbýlishús
312
604 þ.kr./m2
68.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin