NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS. FALLEGT EINBÝLI MEÐ AUKAÍBÚÐ - GÓÐAR LEIGUTEKJUR.
STRÝTUSEL 10. FALLEGT EINBÝLISHÚS Á FRIÐSÆLUM STAÐ Í LOKAÐRI GÖTU Í SELJAHVERFI. REYKJAVÍK.
Opið hús Sunnudaginn 26.apríl 2026, kl.14.00 - 15.00 Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S: 896-5222 netfang: ingolfur@valholl.is
Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Glæsilegt alls 234,8 fm einbýlishús á frábærum rólegum stað í lokaðri götu, þar af 47,9 fm tvöfaldur bílskúr, sem í dag er að stórum hluta innréttaður sem íbúð sem er í leigu og gefur góðar tekjur. Húsið teiknaði Kjartan Sveinsson. Gott skipulag, svefnálma með 4 svefnherbergjum auk vinnuherbergis, heitur pottur í garði, góðar stofur og rúmgóðar suður svalir. Eign í góðu standi.
Smelltu hér til að skoða vídeó af eigninni SKIPULAG: Forstofa með hvítum skápum.
Hol. Svefnálma: 4 svefnherbergi, fataherbergi innaf hjónaherbergi (getur mögulega verið svefnherbergi), skápar þar fylgja ekki. Útgengt úr hjónaherberginu útá góða afgirta suður verönd bakatil með
heitum potti. Baðherbergi (endurnýjað 2011) flísalagt með baðkari, sturtu, handklæðaofni, glugga og innréttingu með steinborðplötu. Innaf holi er
vinnuherbergi / skrifstofuherbergi þar sem er útgengt útí garðinn. Einnig
geymsla innaf holinu sem er í hluta bílskúrs ásamt
þvottaherbergi með vaski og glugga. Bogadregin teppalagður stigi uppá 2.hæð=
Hol / sjónvarpshol.
Gestasnyrting innaf flísalögð með glugga og upphengdu salerni. Fallegt
eldhús með borðkrók, hvítlökkuð innrétting, stálháfur og
búr innaf með glugga og hillum.
Borðstofa og stofa með fallegum arin sem var tekinn í gegn af Funa 2015. Strompur var þá einangraður og klæddur. Útgengt á
stórar suður svalir sem voru múr- og sprunguviðgerðar 2019. Stórt hellulagt bílaplan með hitalögn. Húsið er hraunað að mestu að utan. Gólfefni: Parket á öllum gólfum nema flísar á baði, þvottahúsi, forstofu og gestasnyritingu. Útigeymsla við húsið með rafmagni.
AUKAÍBÚÐ í bílskúr (ca 40 fm)= Anddyri. Alrými með eldhúskrók m.uppþvottavél, og stofa. Innaf er svefnherbergi og innaf því er baðherbergi flísalagt með sturtu, innréttingu, glugga, upphengdu salerni og sérlögn fyrir þvottavél. Gólfefni í íbúð: Parket nema flísar á baði.
ANNAÐ: Upplýsingar frá seljanda: Rúmgott upphitað bílaplan með tengi fyrir rafmagnsbíl. Rúmgóður garður. 2014 var lagður pallur úr harðvið og settur upp góður geymsluskúr (um 6fm). Á pallinum er góður rafmagnsnuddpottur. Garðljós tengd sólúri. Nýtt grindverk í kringum garðinn var sett upp 2018-2019.
2017 var farið yfir þakið á húsinu, skipt um allar rennur, járn á þakvængjum og settar flasningar á þakkanta.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222 ingolfur@valholl.is
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 37 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SKV, GREININGU CREDITINFO, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR.