SPÁNAREIGNIR KYNNIR:GLÆSILEG FJARKAHÚS MEÐ EINKASUNDLAUG VIÐ LA SERENA GOLFVÖLLINN – LOS ALCAZARES
Falleg og nútímaleg fjarkahús á frábærum stað við La Serena golfvöllinn í Los Alcázares á Costa Calida. Húsin eru hönnuð með áherslu á þægindi, birtu og nútímalegan lífstíl þar sem útivist og einkalíf njóta sín til fulls. Um er að ræða rúmgóð hús á tveimur hæðum með sér garði, einkasundlaug, möguleika á útieldhúsi, stórum veröndum og góðum þaksvölum með möguleika á heitum potti. Einstök staðsetning í göngufæri við golfvöll, veitingastaði, þjónustu og fallegar strendur Mar Menor. Aðgangur að glæsilegri „resort-style“ aðstöðu, þar á meðal spa, líkamsrækt, sauna, bílastæðum í bílakjallara með geymslum og stórum grænum svæðum með sundlaug og afslöppunarsvæðum. Los Alcázares er einn vinsælasti strand- og golfbærinn á Costa Calida, þekktur fyrir skemmtilegt mannlíf, fallega strandlengju, tapasstaði og frábært loftslag allt árið um kring. Stutt í fjölmarga vinsæla golfvelli, m.a. Roda Golf, Mar Menor Golf, Las Colinas, La Manga Club, Las Ramblas og Villamartin.
Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, 00354 893 2495 – adalheidur@spanareignir.is
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, 0034 615 112 869 – berta@spanareignir.is
Nánari lýsing:Rúmgóð og vel skipulögð fjarkahús, alls um 117 fm að stærð. Á neðri hæð er björt stofa og borðstofa í opnu rými tengd glæsilegu eldhúsi með öllum helstu raftækjum inniföldum. Eitt svefnherbergi og baðherbergi með sturtu. Útgengi er út í fallegan einkagarð með einkasundlaug, útisturtu og möguleika á útieldhúsi/grillsvæði. Einnig er snyrting utandyra við garðinn. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og svalir. Á þaksvölum er lagt fyrir heitum potti/jacuzzi og möguleiki á að útbúa einstakt lounge-svæði og sólbaðsaðstöðu.
Innifalið í verði: Einkasundlaug. Fullbúið eldhús með eldhústækjum. Loftkæling/air condition. Rafdrifnar rúllugardínur. Baklýstir speglar og baðinnréttingar. LED lýsing. Sér bílastæði í bílakjallara. Möguleiki á geymslu. Lagt fyrir fyrir jacuzzi á þaksvölum.
Frá 475.000 evrum + kostn. við kaupin.Afhending áætluð í desember 2027.
Einstakt tækifæri til að eignast glæsilega nýja eign á eftirsóttum stað við golf og strönd og sjarmerandi spænskan bæ.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 – tryggir reynslu, þekkingu og öryggi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar,
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annars kostnaðar við kaupin.
Eiginleikar: ný eign, einkasundlaug, sér garður, golf, strönd, loftkæling, þaksvalir, jacuzzi, útieldhús, bílakjallari, geymsla,
Svæði: Costa Calida, Los Alcázares, La Serena Golf,