Fasteignaleitin
Skráð 3. ágúst 2026

SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia

Nýbygging • RaðhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
76 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
33.300.000 kr.
Fermetraverð
438.158 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
910020826_1
Landnúmer
0
Húsgerð
Raðhús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir, þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT RAÐHÚS MEÐ STÆÐI Í BÍLAKJALLARA* *SÉR GEYMSLA* *FRÁBÆRT VERÐ*


Falleg raðhús með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum í bænum Santa Rosalía – í stuttri fjarlægð frá Santa Rosalía Lake & Life Resort, en utan sjálfs orlofssvæðisins. Með einkaverönd, sameiginlegri upphitaðri sundlaug, bílastæði og geymslu í kjallara. Þessar eignir eru í vel staðsettu íbúðahverfi og gera kaupendum kleift að njóta hins eftirsótta Miðjarðarhafslífs fyrir afar samkeppnishæft verð. Frábært tækifæri fyrir þá sem leita að gæðum, rúmgóðu húsnæði og góðu verði í hjarta Murcia-héraðs.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034  0034 615112869.


Nánari lýsing: 
Á jarðhæð er gengið inn í bjart og opið alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda samfellda heild með beinu aðgengi út á verönd. Inn af eldhúsi er baðherbergi og þaðan er útgengt á litla verönd. Á annarri hæð eru tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þaksvalir með útieldhúsi og góðri sólbaðsaðstöðu. Svefnherbergi eru með góðum fataskápum. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Sérmerkt bílastæði og geymsla í bílakjallara fylgja. Í sameign er upphituð sundlaug. 

Stutt og greið leið er að ströndum Mar Menor og bænum Los Alcázares, sem er einn vinsælasti áfangastaður Costa Cálida. Um það bil 1 klukkustundar akstur er frá Alicante-flugvelli og aðeins um 20 mínútur frá Corvera, nýja alþjóðaflugvellinum í Murcia. Staðsetningin er einstaklega góð og stutt er á strendur, golfvelli, flugvöll og alla helstu daglega þjónustu.

Verð (gengi 1EVRA=145ISK)
3ja herb. (tvö svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð frá 229.900 Evrum (33.300.000ISK) + kostn. við kaupin.
4ra herb.  (þrjú svefnherbergi + tvö baðherbergi): verð 239.900 Evrum (34.800.000ISK) + kostn. við kaupin
 
Húsin eru tilbúin til afhendingar í júní 2027.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandaðaða eign með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni. Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, verönd, golf, sundlaugargarður, 
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
910020826_1

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
83 m2
Raðhús
423
419 þ.kr./m2
34.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR -San Miguel De Salinas
Bílastæði
Efsta hæð
SPÁNAREIGNIR -San Miguel De Salinas
Spánn - Costa Blanca
100 m2
Fjölbýlishús
322
333 þ.kr./m2
33.300.000 kr.
Skoða eignina Ljósvallagata 30
Kjallaraíbúð
Opið hús:05. ágúst kl 17:00-17:30
Ljósvallagata 30
101 Reykjavík
74.4 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Bárugata 21
3D Sýn
Kjallaraíbúð
Opið hús:06. ágúst kl 17:15-17:45
Skoða eignina Bárugata 21
Bárugata 21
101 Reykjavík
72.4 m2
Fjölbýlishús
211
965 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin