Fasteignaleitin
Opið hús:13. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 7. júlí 2026

Ögurás 7 (208)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
98.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
930.162 kr./m2
Fasteignamat
80.950.000 kr.
Brunabótamat
55.900.000 kr.
Mynd af Jórunn Skúladóttir
Jórunn Skúladóttir
Lögg. fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2244534
Landnúmer
179119
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
08
Vatnslagnir
Sjá upplýsingaskjal seljenda
Raflagnir
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Frárennslislagnir
Sjá upplýsingaskjal seljenda
Gluggar / Gler
Sjá Upplýsingaskjal seljenda
Þak
Sjá upplýsingaskjal seljanda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svali
Lóð
5,96
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Háborg fasteignasala og Jórunn, löggiltur fasteignasali, kynna með stolti í einkasölu stórglæsilega 98,8 fm þriggja herbergja endaíbúð á efri hæð með sérinngangi við Ögurás 7 í Garðabæ.

Hér er um að ræða sérlega bjarta, vandaða og smekklega endurnýjaða endaíbúð á 2. hæð (efstu hæð). Íbúðin er einstök einkum vegna þess að hún er endaíbúð, birtu skilyrði góð,  mikillar lofthæðar í stofu, sem ásamt stórum hornglugga og útgengi á suðvestursvalir skapar einkar bjart og opið alrými með miklu rúmmáli.

Úr stofunni blasir við dásamlegt útsýni vestur yfir sundin, þar sem sjá má Bessastaði, Gálgahraun, Akrafjall og Snæfellsjökul í fjarska. Á svölunum má svo njóta þess þegar kvöldsólin dansar við sjóndeildarhringinn.

Ásahverfið er rótgróið og eftirsótt hverfi og Ögurás stendur efst á holtinu við opið grænt svæði með göngustígum, leikskóla, leikvelli og sparkvelli. Einnig er grunnskóli í göngufæri.

Lykilupplýsingar
  • Efri hæð, endaíbúð og mikið útsýni
  • Mikið endurnýjuð
  • Stærð: 98,8 fm
  • Herbergi: 3 (2 svefnherbergi + stofa)
  • Hæð: 2. hæð til hægri (efsta hæð)
  • Sérinngangur: Já, af stigapalli
  • Byggingarár: 2000
  • Laus strax og tilbúin til influtnings


Lýsing eignarinnar
Komið inn í íbúðina. Gengið er upp eina hæð á veglegan yfirbyggðan stigapall með háu og reisulegu þaki yfir stærstum hluta stigans. Sérinngangur er af stigapalli. Forstofan tekur vel á móti með góðum fataskápum og þaðan er gengið inn í alrýmið.

Alrými, eldhús og stofur
Alrýmið er einstaklega glæsilegt með hallandi lofti og hámarkslofthæð sem nær allt að 4,16 metrum undir mæni, sem gefur rýminu mikla vídd og birtu. Harðparket er á öllum gólfum og flísar á votrýmum, en gólfefni íbúðarinnar voru endurnýjuð árið 2019.

Eldhúsið var endurnýjað árið 2019. Veggur milli eldhúss og stofu var fjarlægður og sett upp ný innrétting. Eyju var síðan bætt við árið 2025. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með.

Stofan er björt og rúmgóð, með stórum hornglugga sem hleypir inn mikilli dagsbirtu. Útgengt er á suðvestursvalir með síðdegis- og kvöldsól, þar sem njóta má áðurnefnds útsýnis yfir sundin og Snæfellsjökul.

Svefnherbergi og baðherbergi
  • Tvö svefnherbergi og baðherbergi/þvottahús, liggja saman á gangi.
  • Hjónaherbergi: með góðum fataskápum
  • Barnaherbergi: bjart og rúmgott með skápum
·       
Baðherbergið er flísalagt með ljósum flísum. á baði er góð snyrtiaðstaða, baðkar og upphengd sturta. Einnig er góður skúffu skápur undir handlaug með speglaskáp fyrir ofan. Inn af baðherberginu er þvottahús með innréttingu og góðri vinnuaðstöðu með rennihurð á milli rýma. Gluggi í þvottahúsinu.

Framkvæmdir og endurbætur 
·       2020: Þak yfirfarið, málað og þakkantur lagfærður
·       2019: Harðparket lagt á öll gólf
·       2019: Nýr skápur í forstofu
·       2019: Eldhúsinnrétting endurnýjuð og 2025 var eyju bætt við 
·       2022: Snjallperur (Philips hue) í festum ljósum (öll ljós fylgja)
·       2025: Opnanleg fög og rúður þeirra endurnýjaðar í íbúðinni. Þéttikantar hurða og glugga, læsingar og lamir yfirfarðar. Fúgað og þétt á milli steins og timburs þar sem þurfti.
       
Hús og sameign:
·       2020: Þak yfirfarið, málað og þakkantur lagfærður.
·       2024: Fjórar rafhleðslustöðvar settar á sameiginlega lóð.
·       2026: Samþykkt að fjölga rafhleðslustöðvum í fimm talsins.

Geymslur og sameign:
·       Geymsla innan íbúðar, innaf forstofu: Já, með hillum og skápum. Mögulegt er að nýta rýmið sem fataherbergi.
·       Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á lóð.
·       Sameiginleg geymsla á hæð fyrir áhöld.

Bílastæði:
Malbikuð sameiginleg bílastæði á lóð. Á sameiginlegri lóð eru fjórar rafhleðslustöðvar fyrir bíla, og samþykkt var á aðalfundi húsfélagsins 9. febrúar 2026 að bæta við einni hleðslustöð til viðbótar. Snjóbræðsla er í stétt á bílaplani.

Húsið og lóðin:
Húsið er hannað af Bjarna Snæbjörnssyni og er tveggja hæða staðsteypt íbúðarhús, steinað að utan. Loftplata efri hæðar er steinsteypt nema yfir stofum, þar sem eru niðurklædd hallandi loft. Þak er klætt bárujárni.

Húsið að Ögurási 1–7 hýsir alls 16 íbúðir. Inngangur hverrar íbúðar er beint að utan, sem tryggir meira næði.

Lóðin er vel frágengin með hellulagðri stétt fyrir framan hús (með snjóbræðslu), tyrfðum flötum og fallegum trjágróðri.

Húsfélag og rekstrarkostnaður:
Í húsinu starfar virkt húsfélag, Ögurás 1-7, húsfélag, í umsjón Eignaumsjónar hf. Hússjóður íbúðarinnar er í skilum samkvæmt yfirlýsingu húsfélags dags. 13.05.2026. Mánaðarleg gjöld eignarinnar eru samtals á mánuði 37.778 kr, þar af framkvæmdasjóður kr.15.575-. Virkt húsfélag er starfandi með traustri fjárhagsstöðu. Á aðalfundi 2026 var samþykkt að bæta vi einni rafhleðslustöð. Stjórn var falið að skoða hvort að tími sé kominn að sílabera húsið og hreinsa loftstokka. Stjórn ætlar að fá tilboð í lagfæringar á grasflöt sunnan megin við húsið.

Hverfið:
Sérlega vel hefur tekist til með skipulag Ásahverfis. Kerfi göngustíga um hraun og græn svæði liðast um hverfið og tengist friðlandinu í Gálgahrauni. Stutt er í glæsilega göngustíga meðfram strandlengjunni í Sjálandshverfi.
Á grænu svæði fyrir aftan húsið eru göngu- og hjólastígar, leikskóli, leikvöllur, sparkvöllur og fallegt útivistarsvæði. Grunnskóli er í göngufæri. Einstök staðsetning

Samantekt:
Um er að ræða einstaklega vel skipulagða og fallega endurnýjaða íbúð á efstu hæð með stórkostlegu útsýni. Mikil lofthæð, vandaðar endurbætur og eftirsótt staðsetning í Ásahverfi gera þessa eign að sérlega spennandi kosti.

Frekari upplýsingar:
Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn, löggiltur fasteignasali, í síma 845-8958 eða á jorunn@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/06/202680.950.000 kr.90.000.000 kr.98.8 m2910.931 kr.
25/03/201942.300.000 kr.51.900.000 kr.98.8 m2525.303 kr.
19/12/201324.450.000 kr.32.000.000 kr.98.8 m2323.886 kr.
01/03/200722.390.000 kr.28.700.000 kr.98.8 m2290.485 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hamraborg 30
Skoða eignina Hamraborg 30
Hamraborg 30
200 Kópavogur
83.3 m2
Fjölbýlishús
312
779 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 15
IMG_6188.jpeg
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
83 m2
Fjölbýlishús
211
902 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9 íb 102
Opið hús:08. júlí kl 17:30-18:00
Vorbraut 9 íb 102
210 Garðabær
100.1 m2
Fjölbýlishús
413
998 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9 íb 104
Opið hús:08. júlí kl 17:30-18:00
Vorbraut 9 íb 104
210 Garðabær
91.2 m2
Fjölbýlishús
312
964 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin