Fasteignaleitin
Opið hús 01. júní kl 17:00-17:30
Skráð 29. maí 2023
Deila eign
Deila

Eskiás 3 íb 201

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
91.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
874.179 kr./m2
Fasteignamat
1 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
2523618
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðar í húsi
3
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Matsstig
1 - Samþykkt
Fasteignasalan TORG kynnir: SÝNUM DAGLEGA!.GSM: 692-3344. Eskiás 3, íbúð 201, 3ja herbergja íbúð skráð 91,4fm, með sérinngangi í nýju litlu fjölbýli á mjög góðum stað í Garðabæ. Íbúð 201 skiptist í forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er innan íbúðarinnar og sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign. Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar án gólfefna, en votrými er flísalagt. Áætluð afhending í október/nóvember 2023. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn lgfs GSM: 692-3344, hronn@fstorg.is og/eða aðrir fasteignasalar hjá Fasteignasölunni TORG, S: 520-9595 eða torg@fstorg.is

Nánari upplýsingar: Um er að ræða nýbyggingu að Eskiás 3 í Garðabæ. Skilalýsing seljanda gildir en í henni kemur meðal annars fram: Íbúðirnar afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, án gólfefna, en votrými eru flísalögð. Svalir eru út frá stofu íbúða á efri hæðum.  Sérafnotasvæði er út af stofu með íbúðum á jarðhæð.
Bílastæði eru á lóð og gert er ráð fyrir nokkrum fjölda hleðslustæða. Allar íbúðir með aðgengi að inngarðinum sem býr til skjólsælan reit fyrir íbúa Eskiás. Íbúðirnar eru hannaðar til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra innan íbúða. Viðhaldslítil klæðning á húsum og lágmarkssameign tryggir hagkvæman rekstur íbúða. Eskiásinn er í miðju grónu hverfi með alla þjónustu í næsta nágreinni. Skólar, verslun og þjónusta eru allt í kring auk þess sem Garðabær hyggst byggja nýjan leikskóla á Lyngási fyrir neðan Eskiás.

Innréttingar og hurðir: Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS. Innihurðir verða hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir (Jeld-Wen Moralt).
Baðherbergi/þvottahús: Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
Heimilistæki: Eldhús skilast með blástursofni, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum. Vifta með kolasíu er í efri skápum yfir helluborði en þar sem að helluborð er staðsett á eyju eða tanga er einungis gert ráð fyrir möguleika á að bæta við viftu.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe. Á baðherbergjum eru tækin krómlituð en í eldhúsi eru vaskur og blöndunartæki svört 
Gólfefni: Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft.  
Slökkvitæki og reykskynjari fylgja hverri íbúð. Dyrabjalla og póstkassi er við hvern sérinngang.
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið eru úr stáli klætt lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Frágangur lóðar: Lóð verður skilað fullfrágenginni. Megin göngustígar verða ýmist hellulagðir eða steyptir og grassvæði þökulögð. Leiksvæði. 
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Afhending íbúðanna: Gert er ráð fyrir að eignirnar verði afhentar í október/nóvember 2023 Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt.  Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu seljanda.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn lgfs GSM: 692-3344, hronn@fstorg.is og/eða aðrir fasteignasalar hjá Fasteignasölunni TORG, S: 520-9595 eða torg@fstorg.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Hafdís Rafnsdóttir
Hafdís Rafnsdóttir
Fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 40
3D Sýn
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
100.3 m2
Fjölbýlishús
413
797 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 40
3D Sýn
Urriðaholtsstræti 40
210 Garðabær
99.5 m2
Fjölbýlishús
413
798 þ.kr./m2
79.400.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 3 íb 303
 01. júní kl 17:00-17:30
Eskiás 3 íb 303
210 Garðabær
91 m2
Fjölbýlishús
312
900 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 3 íb 302
Eskiás 3 íb 302
210 Garðabær
90.9 m2
Fjölbýlishús
312
901 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache