Fasteignaleitin
Skráð 14. apríl 2023

Vesturgata 40

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
107.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
93.850.000 kr.
Brunabótamat
60.850.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1980
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2000445
Landnúmer
100189
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
S, V, og A svalir
Lóð
29,28
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Athugið að vatns- og fráveitugjöld eru áætluð sem og fasteignagjöld miðað við stærð íbúðarinnar og hlutfall af heildarstærð en álagning eftir uppskiptingu 2. og 3. hæða liggur ekki fyrir. Móða á milli glerja í sumum gluggum/lausafögum. 
Kvöð / kvaðir
Kvöð um gagnkvæman forkaupsrétt íbúðanna þriggja í húsinu sjá skjal með þinglýsingarnúmeri 441-A-003326/2023. Auk þess er kvöð um jarðvatnslögn sjá skjal með þinglýsingarnúmeri 411-H-38170.
Um notkun kjallara sjá skjal með þinglýsingarnúmeri 411-A-001378/1998 en í kjallara er nú sjálfstæð eining með sér fnr.
Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu fallega íbúð með fallegu útsýni að Vesturgötu 40. Íbúðin er á annarri hæð reisulegs steinhúss sem byggt var 1980 á þessum eftirsótta stað.  Íbúðin er fjögra herbergja og er með útsýni af svölum til suðurs auk svala af stigapalli til vesturs. Stórar svalir til austurs bjóða uppá möguleika á að byggja yfir þær en þær eru yfir 30fm að stærð. Innrétting og tæki í baðherbergi hafa verið endurnýjuð. íIbúðin er í útleigu og yfirtekur kaupandi leigusamning.

Sameiginlegur inngangur er í íbúðina með íbúð á 3.hæð en íbúðin er á 2.hæð og er útgengt á vestursvalir af stigapalli. 
Komið er inní stofu sem leiðir i öll herbergi, eldhús á hægri hönd, gömul innrétting er í eldhúsinu og korkur á gólfi.  Baðherbergið er með góðri innréttingu, flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar og upphengt WC. Til hægri við baðherbergið er svefnherbergi sem snýr í austur og er útgengt á stórar svalir sem mögulega væri hægt að byggja yfir ef leyfi fengist. Annað svefnherbergi snýr til austurs og þriðja herbergið er í suðaustur horninu. Stofan er með útgengi á suðursvalir með nokkru útsýni. Gamalt parket er á gólfum nema á eldhúsi þar sem er korkur og baðherbergi þar sem eru flísar.  
Í sameign er parketlagður stigi á milli hæðanna og svalir til vesturs eru sameiginlegar, í kjallara eru sérgeymsla þessarar eignar sem er 12,4fm að stærð, sameiginleg þvottaaðstaða og auk þess er sturta í rýminu. Rætt hefur verið að hægt sé að byggja hjóla- og vagnageymslu austanmegin við húsið en ákvörðun, teikningar og nánari útfærsla liggja ekki fyrir.
Húsið er fallegt og reisulegt steinhús á þessum frábæra stað. Fyrir framan húsið er pláss fyrir bíla en ekki eru skráð bílastæði sem fylgja húsinu eða íbúðunum. 

Íbúðin er í útleigu og yfirtekur kaupandi leigusamning.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/09/202293.500.000 kr.198.000.000 kr.435.1 m2455.067 kr.Nei
26/09/202293.500.000 kr.198.000.000 kr.435.1 m2455.067 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ánanaust 3 (Vesturvin 2) 404
Opið hús:06. sept. kl 13:00-13:30
5P1A7013-enhanced.jpg
Ánanaust 3 (Vesturvin 2) 404
101 Reykjavík
111.7 m2
Fjölbýlishús
311
1092 þ.kr./m2
122.000.000 kr.
Skoða eignina Mýrargata 41 (Vesturvin 1) 505
Opið hús:06. sept. kl 13:00-13:30
5P1A6759-enhanced.jpg
Mýrargata 41 (Vesturvin 1) 505
101 Reykjavík
104.3 m2
Fjölbýlishús
321
1198 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 1 (204)
0C7D6193-35A7-400B-B165-78C6578A0597.jpeg
Skoða eignina Kolagata 1 (204)
Kolagata 1 (204)
101 Reykjavík
117.5 m2
Fjölbýlishús
322
1123 þ.kr./m2
132.000.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 106
Ánanaust 5 (Vesturvin 3) íb 106
101 Reykjavík
87 m2
Fjölbýlishús
312
1033 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin