BYR fasteignasala kynnir í sölu LANGAHRAUN 19 ÍBÚÐ 201, 810 Hveragerði. Ný fjögurra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi í nýju hverfi, Kambaland í Hveragerði.
ÍBÚÐ 201 efri hæð. Íbúð 101,4 m² og geymsla 13,2 m² samtals 114,6 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymsla. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.
EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU. Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign og eru því eingöngu til viðmiðunar.
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp. Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr stofu út á svalir til suðurs.
Eldhús með HTH innréttingu, eyja með helluborði, háfur er yfir eyju. Ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir innbyggðum ísskáp og frysti ásamt innbyggðri uppþvottavél, fylgja hurðar á innbyggð tæki.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með fjórföldum HTH fataskáp. Tvö svefnherbergi bæði með tvöföldum HTH fataskáp.
Baðherbergi, HTH innrétting, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn, vegghorn sturtu eru flísalögð.
Þvottahús er innan íbúðar, tengill fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofn.
Geymsla er á neðri hæð.
Hjóla- og vagnageymsla og inntaksrými er í sameign.
Gólfefni, íbúðinni er skilað á megin gólfefna, flísar eru á baðherbergi.
Húsið er tveggja hæða 5 íbúða fjölbýlishús, steinsteypt og klætt að utan. Á fyrstu hæð eru tvær íbúðir, fimm geymslur ásamt inntökum og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Á annarri hæð eru þrjár íbúðir.
Húsið er klætt að utan með brúnleitri liggjandi báruklæðningu og sléttri svartri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið pvc þak með fargi. Gluggar eru á/tré gluggar, hvítir á lit að innan, svartir að utan. Útihurðar íbúðar eru tréhurðar.
10 sameiginleg bílastæði eru á lóð þar af eitt fyrir hreyfihamlaða. Lóð er þökulögð og gróðurbeð jöfnuð án gróðurs. Bílastæði eru malbikuð með „skjólvegg", hellulagt er að húsi. Sorptunnuskýli er á lóð fyrir 3. stk 660 l. sorpílát. Gert er ráð fyrir möguleika á hleðslustöð-vum fyrir rafbíla en hleðslustöðin sjálf er ekki uppsett.
Húsið er hannað á grundvelli algildrar hönnunar, í öllum íbúðum er hægt að uppfylla skilyrði um algilda hönnun með einföldum breytingum.