Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isÖngulsstaðir 5 íbúð 102 - Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi í tvíbýlishúsi í Eyjafjarðarsveit - stærð 98,0 m²Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, snyrtingu og tvær geymslur.
Nánari lýsing:
Forstofa er með ljósu harð parketi á gólfi og tvöföldum skáp með rennihurðum. Úr forstofu er gengið inn á
gang með ljósu harð parketi á gólfi.
Eldhús er með plastlagðri L-laga hvíttaðri eikar innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél. Ljóst harð parket á gólfi og gluggar til tveggja átta.
Stofa er með ljósu harð parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Opið er á milli stofu og eldhúss.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harð parketi á gólfi og fataskápum. Hvít innrétting með handlaug er í hjónaherberginu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hvítum þiljum á veggjum, hvítri innréttingu og kommóðu sem fylgir með við sölu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og opnanlegum glugga.
Snyrting er með flísum á gólfi og hvítum þiljum á veggjum, upphengdu wc, hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni, önnur er innan íbúðar við endan á ganginum, þar er harð parket á gólfi og hillur. Hin geymslan er í kjallaranum, skráð 7,8 m² að stærð. Þar er lakkað gólf, hillur og gluggi.
Lóðin er eignarlóð í sameign en eignin er með sér afnotaflöt sunnan við hús skv. eignaskiptasamningi. Þar er nýleg leikgrind, sett upp 2023, sem og sandkassi og útiborð sem fylgja með við sölu.
Annað- Árið 2019 var innrétting í eldhúsi endurnýjuð og lagt nýtt harðparket á forstofu, gang, eldhús, stofu og annað svefnherbergið. Parket fyrir hitt herbergið var lagt 2022.
- Sumarið 2021 var húsið múrviðgert og málað að utan
- Ofnar og ofnalagnir hefur verið endurnýjað.
- Hlutfall í reikningi fyrir vatns- og hitaveitumeæla er 25,16%
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.