Fasteignaleitin
Skráð 11. mars 2025
Deila eign
Deila

Seljudalur 32

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
120 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
80.400.000 kr.
Fermetraverð
670.000 kr./m2
Fasteignamat
72.200.000 kr.
Brunabótamat
58.810.000 kr.
Elínborg Ósk Jensdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2019
Þvottahús
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2355224
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
9
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Seljendur hafa aldrei búið í eigninni og því er kaupandinn hvattur til þess að kynna sér ástand eignarinnar gaumgæfilega þar sem seljendur geta ekki uppfyllt upplýsingaskyldu seljenda eins og lög gera ráð fyrir.
ALLT fasteignasala kynnir eignina: Seljudal 32, Njarðvík
Um er að ræða fallegt 3ja herbergja raðhús á fallegum útsýnisstað í Njarðvík.
Húsið er skráð 120 fm., þar af er innbyggður 23,2 fm. bílskúr.
Húsið skiptist í anddyri, hol, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og þvottahús, tvö góð herbergi og bílgeymsla með geymslulofti.
Mikil lofthæð er í húsinu sem og stórir gluggar sem gerir það bjart og fallegt útsýni yfir Faxaflóann frá bílastæði
.

**Virkilega falleg eign sem vert er að skoða, sýnum samdægurs**

Nánari upplýsingar veitir Elínborg lgf. í síma 823-1334 og á netfanginu elinborg@allt.is og Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is

 
** Eignin er laus við kaupsamning
** Hús byggt 2019, tekið í notkun 2021
** Vandaðar innréttingar
** Stapaskólahverfi
** 20 mín á höfuðborgarsvæðið
** 10 mín á alþjóðaflugvöll
** 2 rúmgóð svefnherbergi
** Fallegt útsýni
** Góður pallur í suðri
** Gólfhiti í öllu húsinu

Nánari lýsing:

Mjög snyrtileg aðkoma er að húsinu, innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslu. Góður suðurpallur aftan við húsið. Húsið er vel staðsett, örstutt frá nýjum glæsilegum Stapaskóla. Gólfhiti er í öllu húsinu.

Anddyri: Gengið er inn í anddyri sem er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Komið er inn í hol, eldhús, stofu og borðstofu sem er í opnu og björtu rými með harðparket á gólfum. Rýmið hefur mikla lofthæð og stóra glugga. Útgengt er frá stofu út á verönd.
Eldhús: Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá HTH með innbyggðum ofn, ísskáp og uppþvottavél.
Herbergin: Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta, góð innrétting og ljósaspegill.
Þvottahús: Innaf baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi og hvít innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílgeymsla: Úr holi er innangengt inní rúmgóða bílgeymslu með epoxy á gólfi og geymslulofti.


**Húsið er virkilega vel staðsett, stórkostlegt útsýni, stutt í grunnskóla og leikskóla sem vert er að skoða**

Seljendur hafa aldrei búið í eigninni og því er kaupandinn hvattur til þess að kynna sér ástand eignarinnar gaumgæfilega þar sem seljendur geta ekki uppfyllt upplýsingaskyldu seljenda eins og lög gera ráð fyrir.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62,  240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/07/202145.900.000 kr.52.000.000 kr.120 m2433.333 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2019
23.2 m2
Fasteignanúmer
2355224
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
10
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.560.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Svæðisupplýsingar

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dísardalur 7 - Íb. 104
Dísardalur 7 - Íb. 104
260 Reykjanesbær
107.1 m2
Fjölbýlishús
43
727 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Stapavellir 21
Bílskúr
Skoða eignina Stapavellir 21
Stapavellir 21
260 Reykjanesbær
123.3 m2
Raðhús
312
624 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 7 - Íb. 204
Dísardalur 7 - Íb. 204
260 Reykjanesbær
108.3 m2
Fjölbýlishús
413
719 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Stapavellir 21
Bílskúr
Skoða eignina Stapavellir 21
Stapavellir 21
260 Reykjanesbær
123.3 m2
Raðhús
312
624 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin