LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 3.herbergja talsvert endurnýjaða 87,7 m2 íbúð á 2. hæð við Grýtubakka 18 í Reykjavík. Endurbætur hafa verið gerðar á bæði íbúð og ytra byrði hússins, sjá lista neðar í lýsingu.
Birt stærð íbúðar er 78,9 m2 ásamt 8,8 m2 geymslu , samtals alls 87,7 m2 skv. skráningu HMS. Eignin skiptist í hol, eldhús og stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér geymslu í sameign.
Nánari lýsing:Hol og gangur er með góðum skáp með speglahurðum.
Eldhús með nýlegri innréttingu með efri og neðri skápum með plötum á milli skápa, eyja með góðu skúffuplássi með ljúflokunum á skúffum, eldri ofn, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofan er í opnu rými með eldhúsi með parketi á gólfi og útgengi út á svalir sem snúa út í garð.
Baðherbergi með dúkflísum á gólfi og veggplötum á veggjum að hluta til, sturtuklefi, vaskur með spegli fyrir ofan, handklæðaskápur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Geymsla í sameign er mjög rúmgóð með máluðu gólfi og hillum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameigin. Helstu endurbætur
* 2014. Gólf í kjallara sameignar, hjólageymslu og ruslageymslu lakkað.
* 2017. Gluggar í stofu og eldhúsi endurnýjuð ásamt svalahurð. Ofnar í eldhúsi og stofu endurnýjaðir.
* 2019. Gluggar í svefnherbergjum endurnýjaðir.
* 2020. Ytra byrði húss málað.
* 2022 Eldhúsinnrétting endurnýjuð
* 2022 Baðherbergið endurnýjað að hluta.
* 2022 rafmagnstafla í íbúð endurnýjuð , skipt um rofa og tengla, ídregið rafmagnRafbílahleðslustöðvar á sameiginlegu bílaplani. Um er að ræða góða og talsvert endurnýjaða íbúð í grónu barnvænu hverfi í neðra Breiðholti.
Mjög stutt er í skóla, leikskóla og Mjóddina sem hýsir alla helstu þjónustu eins og verslanir, heilsugæslu og strætósamgöngur. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is