Fasteignaleitin
Skráð 24. júní 2026

Melalind 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
130.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
712.970 kr./m2
Brunabótamat
65.630.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22297689
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Um er að ræða virkilega fallega og rúmgóða 130,3 fm (þar af 26,1 fm bílskúr) 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt bílskúr á þessum vinsæla stað í snyrtilegu fjölbýli við Melalind 6 í Kópavogi. Virkilega vel umgengin sameign. Mjög fallegt útsýni er frá stofu og eldhúsi til vesturs yfir Kópavogsdalinn. Þakið var yfirvarið og málað árið 2018 og stigagangur málaður og skipt um teppi árið 2017.

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í hol með innbyggðum fataskáp. Á hægri hönd við inngang er stofa með útgangi út á rúmgóðar svalir með timbur flísum á svalargólfi. Eldhúsið er með fallegri nýlegri grárri háglans innréttingu (frá árinu 2019), mósaíkflísar milli efri og neðri skápa, span helluborð. Mjög rúmgóður borðkrókur. Innaf eldhúsinu er búr með nýlegri innréttingu. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, sér sturta og baðkar með sturtu. Snyrtileg innrétting með efri og neðri skápum og spegli á milli. Tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. Tvö svefnherbergi og er fataskápur í báðum herbergjum. Eigninni fylgir 8,2 fm sérgeymsla með hillum. Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla. Bílskúr með heitu og köldu vatni, rafmagnsopnara og skolvaski. Búið að leggja fyrir hleðslustöð en stöðin mun ekki fylgja með í kaupunum. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. 

ÞETTA ER FALLEG EIGN Í RÓTGRÓNU OG FJÖLSKYLDUVÆNU HVERFI ÞAR SEM STUTT ER Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða andri@landmark.is
 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Tangabryggja 13
Bílastæði
Skoða eignina Tangabryggja 13
Tangabryggja 13
110 Reykjavík
191 m2
Fjölbýlishús
623
759 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Stóragerði 18
Skoða eignina Stóragerði 18
Stóragerði 18
108 Reykjavík
106.6 m2
Fjölbýlishús
413
703 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
106.4 m2
Fjölbýlishús
322
1080 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin