Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2025

Áshildarvegur 23

Jörð/LóðSuðurland/Selfoss-804
Verð
17.400.000 kr.
Fasteignamat
16.700.000 kr.
Mynd af Snorri Snorrason
Snorri Snorrason
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2345714
Landnúmer
214267
Húsgerð
Jörð/Lóð
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Gallar
Ekki hefur verið sótt um nein leyfi til bygginga eða framkvæmda á lóðinni. Gámurinn er stöðuhús. Hreinsistöð er sett niður skv leiðbeiningum og er nú teng við gáminn. Sækja þarf um leyfi fyrir henni samhliða  því þegar sótt verðu um byggingarleyfi fyrir lóðinni.
LÆKKAÐ VERÐ!!
EINBÝLISHÚSALÓÐ Á SÆLUSTAÐ.  1 ha (10.000 fm) EIGNARLAND Á EINSTÖKUM STAÐ Í 12 MÍN. FJARLÆGÐ FRÁ SELFOSSI.


Valhöll fasteignasala Síðumúla 27, Sími: 588-4477 og Snorri Snorrason.  Lg.fs.  Sími: 895-2115 -  snorri@valholl.is, kynna til sölu fallega íbúðarhúsalóð  nr, 23 við Áshildarveg í Skeiða- og Gnúbverjahreppi . Lóðin er vel staðsett í þessum  friðsæla stað með fjölbreyttri flóru og fuglalífi og þar sem njóta má útsýnis til fjalla og jökla. Platnað hefur verið þúsundum trjáa síðustu 15 árin.
Frábært tækifæri til að hreiðra um sig í sveitasælunni með verslanir og þjónustu.  Aðeins 12 mín.akstur á Selfoss eða um klukkutíma akstur frá höfuðborginni.  Smelltu hér til að sjá staðsetningu


Byggja má allt að 350 fm. einbýlishús og 70 fm. íbúðarhús/gestahús  eða geymslu.    Heilsársbyggð er á svæðinu  og njóta íbúar fullrar þjónustu frá Sveitarfélaginu.
Kalt vatn tengd vatnsveitu svæðisins,  3ja fasa rafmagn.  Heitt vatn er á lóðarmörkum sem kemur úr sameiginlegri borholu. Lögn fyrir ljósleiðara er á lóðamörkum. 
Hér er um að ræða eina bestu lóðina á svæðinu og er hún enda lóð  við  Áshildarveg.  Hraunið mótar lóðina og þar gott byggingarland.
Árgjald í félag lóðareiganda var árið 2024, kr. 50.000
Gjald fyrir vatnsveitu, kalt vatn var fyrir árið 2024, kr 41.262


Á lóðinni er  20 feta gámur (einangraður frystigámur), sem hefur verið breytt og sett á hann gönguhurð og  tveir gluggar. Gámurinn er innréttaður og skiptist í forstofu, snyrtingu og alrými.
Hægt er að setja sturtu inni á snyrtingunni og koma fyrir hitakút.  Handlögin er ótengd.  Í alrýminu er vaskaborð og skápur en vaskur er ótengdur.  Tveir rafmagnsofnar eru tengdir og halda þeir auðveldlega hita á gámnum yfir veturinn. 
Hreinsistöð  fyrir frárennsli (keypt 2022 og tekin í notkun 2023) og er hún nú  tengd við frárennsli gámsins.
Rafmagnstafla er staðsett inni á snyrtingu og eru þar  3ja fasa tenglar,
Geymsluskúr  ca.4 fm fylgir með.  Á lóðinni er hjólhýsi (TEC 560TDF árg.2004) með stóru fortjaldi sem getur selst  með svo og ýmislegt efni ss vörubretti og plötur til að gera gólf í fortjaldi, markísa og hjólastandur.
Áshildarvegur 23 er innsta lóðin og er því mikið næði og stórkostlegt útsýni, en sést yfir til Heklu, Tindfjalla og Eyjafjallajökuls.  Smelltu hér til að sjá staðsetningu.
Friðsæll staður með fjölbreyttu flóru og fuglalífi.   Búið er búið að planta þúsundum tjáa s.l. 15 ár og eru mörg þeirra orðin nokkurra metra há og farin að veita skjól.  Tegundir eru t.a.m. stafafura, dvergfura, fjallafura, bergfura, lindifura, lerki, sitkagreni, blágreni, hvítgreni, alaskaösp, keisaraösp, selja, ilreynir, knappareynir, rósareynir, fagurreynir, skrautreynir, alpareynir, kínareynir, koparreynir, silfurreynir, fjallareynir, úlfareynir, bergreynir, hlynur, askur, eik, beyki, hafþyrnir, gullregn, heggur, alaskaepli, sunnukvistur, birkikvistur, japanskvistur, yllir, sírenur, blátoppur, skógartoppur, reyniblaðka, runnamura, fjallarifs, sólberjarunnir, taxus, berberis, bersarunni, stikkilsberjarunni, myrtuvíði, lyngrós og fleiri rósategundum.
Úrdráttur úr deiliskipulagi vegna húsbyggingar.
Skv deiliskipulagi dags. 22.05.2019 þá er heimilt að byggja íbúðarhús allt að 350 fm. Auk þess er heimilt að byggja allt að 60 fm útihús, geymsla eða þessháttar. Mænishæð skal að mámarki vera 6 m miðað við tvíhallahús sjá nánar deiliskipulag.. Síðar hefur verið leyft að byggja allt að 70 fm íbúðarhús/gestahús og  eða geymslu til viðbótar við 350 fm íbúðarhús.

Nánari upplýsingar  td um félag  lóðareiganda, Vatnsveitu Áshildarmýrar ehf og Hitaveitu Áshildarmýrar ehf  veitir fasteignasali.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Seljaland 28
Skoða eignina Seljaland 28
Seljaland 28
806 Selfoss
Jörð/Lóð
3.500.000 kr.
Skoða eignina Brimnesvegur 10 neðri hæð
Brimnesvegur 10 neðri hæð
625 Ólafsfjörður
82.2 m2
Fjölbýlishús
312
206 þ.kr./m2
16.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 (101)
5.jpg
Skoða eignina Vorbraut 1 (101)
Vorbraut 1 (101)
210 Garðabær
114.8 m2
Jörð/Lóð
312
1001 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Hólsakur
Skoða eignina Hólsakur
Hólsakur
816 Ölfus
Jörð/Lóð
Fasteignamat 12.900.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin