Reisulegt 177,80 fm einbýlishús með möguleika á aukaíbúð á jarðhæð. 690 Vopnafjörður.
Íbúð á efri hæð: Komið er í forstofu með flísum og fatahengi. Innra hol með parketi. Björt stofa og borðstofa með parketi. Eldhús með parketi, eldri innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, eldavél og vifta, borðkrókur, gengt er í kalt búr með dúk á gólfi, hillur, þar er lúga upp á háaloft. Svefnherbergisgangur með parketi. Baðherbergi með flísum, vaskur í innréttingu, sturtuklefi. Þvottahús með máluðu gólfi, hillur, gengt er út á verönd. Þrjú herbergi með parketi eitt þeirra er með fataskáp. Hjónaherbergi með parketi, stór fataskápur. Frá svefnherbergisgangi er lúga niður á jarðhæð, einnig er gengt út á svalir.
Jarðhæð: Sér inngangur. Komið er í forstofu með málað gólf. Eldhús með parketi, eldri innrétting, vaskur við glugga, borðkrókur. Stofa með málað gólf. Herbergi með málað gólf, þaðan er gengt í stórt óuppfyllt rými. Stórt herbergi með steypt gólf sem er þvottahús, wc og kyndiklefi, hægt að tengja baðkar eða sturtu, einnig er þar gengt upp á efri hæð.
Við inngang á efri hæð er skjólgóð verönd. Garður í rækt. Stutt er í skóla, íþróttir og aðra þjónustu. Útsýni til sjávar.
Góð eign á vinsælum stað á Vopnafirði.
Ævar Dungal Löggiltur fasteignasali sími 897-6060 / dungal@aves.is
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 58.475,-