Fasteignaleitin
Skráð 5. ágúst 2025

Hnjúkamói 16, íbúð 0303

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
50.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
44.900.000 kr.
Fermetraverð
882.122 kr./m2
Fasteignamat
37.850.000 kr.
Brunabótamat
34.000.000 kr.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534108
Landnúmer
237176
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
2,91
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Hnjúkamói 16, íbúð 0303.  Ný, falleg og björt 50,9m2 íbúð á 4. hæð með glæsilegu útsýni.  Íbúðin er með 1 stóru svefnherbergi.   Úr alrými er utangengt á timburklæddar svalir með skjólveggjum úr gleri, sem snúa í hásuður. 
HLUTDEILDARLÁN Í BOÐI.
Húsinu fylgir stór, lokuð hjóla- og vagnageymsla.  Möguleiki á rafhleðslu fyrir rafmagnsbíl.  Háhraða ljósleiðaratenging er í húsinu. 

(Myndir að innan eru úr sýningaríbúð 0101.  Útlit innréttinga er hið sama en skipulag aðeins annars konar)

** Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin telur:
* Forstofu.

* Fallega stofu og eldhús í opnu rými. 
Í eldhúsi er falleg, sérsmíðuð Voke III innrétting, vönduð AEG heimilistæki;  sjálfhreinsandi ofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og kæli-/frystiskápur

* Utangengt er úr stofunni á sér, 8,6m2 timburklæddar suður-svalir.   Frágang við svalir er þannig háttað að á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að setja á þær svalalokun. 

* 1 stórt svefnherbergi með góðum fataskápum.  

* Glæsilegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, ljósum flísum á gólfi, sturtu úr glerþili og fallegum og endingargóðum Grohe hreinlætisækjum.

* Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu á snyrtilegan hátt.

* Á öllum gólfum, nema baðherbergi, er fallegt harðparket frá Álfaborg. 

* LED-ljós frá Ískraft fylgja öllum rýmum íbúða

*  Lyfta er í húsinu. 

*  Við húsið er stór, sameiginleg,  lokuð hjóla- og vagnageymsla með epoxi á gólfi.   Sorpgeymslan er stór, lokuð og með epoxi á gólfi. 

*  Á lóðinni eru 25 bílastæði í óskiptri sameign, þar af 2 fyrir hreyfihamlaða. 

*  Stéttar næst húsi og gangstígar á lóð verða steypt eða hellulagt, snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið og að sorpgeymslu að öðru leyti verður lóð frágengin með þökum.

Efnisval:
Íbúðin er með fallegum, sérsmíðuðum, ljósum innréttingum í bland við dökka viðaráferð frá Voké-III.  Allar innréttingar og fataskápar ná upp í loft !
Heimilistækin eru vönduð AEG tæki frá Rafha.
Flísar á baðherbergi eru ljósar ítalskar 60x60 Panaria Surround flísar, frá Álfaborg
Gólfefni: Slitsterkt BerryAlloc Cadenza harðparket, frá Álfaborg
Innihurðir eru stílhreinar, hvítlakkaðar yfirfelldar hurðir Dana SAX frá Parki
Hreinlætistækin eru falleg og endingargóð tæki frá Grohe.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/
S 483 3424


Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Super1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er góður tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) og Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/09/202514.900.000 kr.44.900.000 kr.50.9 m2882.121 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Suðurlands ehf.
www.eignin.is

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 8 (405)
Hringhamar8_17.jpg
Hringhamar 8 (405)
221 Hafnarfjörður
67.5 m2
Fjölbýlishús
312
902 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Boðaþing 3
Bílastæði
55 ára og eldri
Opið hús:21. mars kl 13:00-13:30
Skoða eignina Boðaþing 3
Boðaþing 3
203 Kópavogur
121.7 m2
Fjölbýlishús
312
1002 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37
Bílastæði
Skoða eignina Hringhamar 37
Hringhamar 37
221 Hafnarfjörður
90.6 m2
Fjölbýlishús
312
827 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42F
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:45
DJI_0225.JPG
Skoða eignina Grandavegur 42F
Grandavegur 42F
107 Reykjavík
89.9 m2
Fjölbýlishús
221
1000 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin