Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu afar veglegt 173.7fm steypt einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum 68.5fm bílskúr.
Samtals er eignin 242.2fm.
----Glæsileg eign sem fengið hefur mjög gott viðhald í gegnum árin - sjón er sögu ríkari----
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, tvö baðherbergi, stofu/borðstofu og fjögur svefnherbergi ásamt bílskúr,
Forstofa er mjög rúmgóð, þar eru flísar á gólfi og góður skápur
Hol er flísalagt
Stofa/borðstofa er mjög stór og er hún parketlögð. Stofa tengist bæði holi og eldhúsi.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er falleg eikar-innrétting með flísar á milli skápa, ofn og helluborð.
Á stærra baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð eikar-innrétting, baðkar, sturtuklefi og handklæðaofn
Á minna baðherbergi er epoxy á gólfi, flísar á veggjum, lítil innrétting og sturtuklefi
Gangur er parketlagður
Þrjú svefnherbergi eru á gangi, öll parketlögð og skápar eru í öllum herbergjum
Í Þvottahúsi er epoxy á gólfi, þar er góð innrétting og stór skápur. Hurð er út á lóð frá þvottahúsi.
Bílskúr er fullbúinn og er hann mjög stór. Gott parketlagt herbergi er innst í skúrnum, góð geymsla og stór skápur. Hurð er út á baklóð frá bílskúr
*Búið er að endurnýja þakjárn og þakkant
*Innkyrsla er mjög stór, steypt og stimpluð
*Tvær verandir eru við húsið og heitur pottur er á annarri þeirra.
*Glæsileg lóð er umhverfis húsið í góðri rækt
*Frábær staðsetning í Garði, rétt við skóla, verslun og íþróttamiðstöð
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is