FastVest kynnir:
Norðurás 8 í Hvalfjarðarsveit.
EF ÞÚ ERT AÐ LEITA AÐ HÚSI MEÐ HITAVEITU, GÓÐRI STAÐSETNINGU, SKJÓLI OG ÚTSÝNI. SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
Um er að ræða 67,2 fm sumarhús á 5.600 fm leigulóð í landi Kambshóls, (Svínadal).
Fallegt útsýni er til fjalla og út dalinn. Lóðin er kjarri vaxin, auk þess hafa eigendur gróðursett mikið af trjám sem mynda einstaklega gott skjól fyrir vindi næst húsinu og skyggja líka á næstu bústaði.
Nánari lýsing
Húsið er 67,2 fm byggt árið 2005 á staðnum af faglærðum smiðum og er til mikið af heimildum/ljósmyndum af byggingu hússins.
Útigeymsla er áföst við húsið og þar eru inntök hússins. Möguleiki að hafa þvottavél í geymslunni.
Stofa og eldhús mynda opið og bjart alrými, þaðan er gengið út á stóran sólpall með heitum potti og frábæru útsýni útá Eyrarvatn.
Þrjú svefnherbergi.
Svefnloft með geymslu undir súð.
Baðherbergi með sturtu.
Annað: Svæðinu er lokað með rafmagnshliði sem tengt er síma. Að sögn seljanda er sumarhúsafélagið mjög vel rekið og hefur yfirtekið alla vegi í byggðinni ásamt kaldavatnsveitunni. Félagið á einnig flotbryggju við Eyrarvatn. Innbú getur fylgt eftir nánara samkomulagi.
Nágrenni/staðsetning. Í næsta nágrenni eru sumarbúðirnar í Vatnaskógi, veitingarstaður/hótel, Hótel Glymur, sundlaug að Hlöðum, þrjú veiðivötn Er ca. 25 mín frá munna Hvalfjarðarganga að norðanverðu. K
ynding: Bústaðurinn er kyntur með hitaveitu.
Stærð lóðar: Lóðin er leigulóð og er 5,600 fm að stærð.
Um afhendingu: stuttur afhendingartími
Sumarbústaðafélag kr. 8.000 kr (2022)
Lóðarleiga kr. 135.032 kr (2022)
Fasteignagjöld kr. 111.115 kr (2022)
Rafmagn ca. 3.500 mánuði
Hiti ca. 13.200 kr mánuði
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
Nánari upplýsingar veitir:
FastVest með þér alla leið.
Kirkjubraut 40
Löggiltir fasteigna- og skipasala
sími 431-4144 netfang fastvest@fastvest.is
Heimasíða www. fastvest.is