Borg fasteignasala og María Mjöll kynna mikið endurnýjaða 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð við Grýtubakka 30 í Reykjavík. Um er að ræða vel skipulagða eign með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými, endurnýjuðu eldhúsi, endurnýjuðu baðherbergi, svölum og stórri sérgeymslu. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin 105,2 fm, þar af er íbúðin 91,1 fm og sérgeymsla 14,1 fm. Skipulag: Forstofa, opið eldhús, stofu og borðstofa, Þrjú svefnherbergi, baðherbergi, svalir, og sérgeymslu
Nánari lýsing:Forstofa með góðu plássi fyrir yfirhafnir og tengist opnu alrými íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með stórum gluggum sem veita fallega birtu, parket á gólfi. Útgengt er á svalir frá stofu.
Eldhús hefur verið endurnýjað með fallegri hvítri innréttingu, góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Eldhúsið er opið inn í alrýmið.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt með flísum, walk- in sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu við vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara inná baði.
Sérgeymsla í sameign er rúmgóð, alls 14,1 m2.
Íbúðin var endurnýjuð að innan 2021, húsið málað að utan 2020, gluggar/gler/svalahurð endurnýað 2020
Eignin er staðsett í grónu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, skóla, þjónustu, útivistarsvæði og góðar samgöngur.
Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.isForsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði