Fasteignaleitin
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 13. nóv. 2026

Kleppsvegur 30

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
50.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.900.000 kr.
Fermetraverð
1.053.785 kr./m2
Brunabótamat
27.650.000 kr.
Byggt 1962
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20161621
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignir og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna til sölu vel skipulagða tveggja herbergja íbúð að Kleppsvegi 30 (liggur meðfram Brekkulæk) í 104 Reykjavík. Eignin er skráð 50,2 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 47,7 m2 og geymsla (merkt 0007) 2,5 m2, og samanstendur af anddyri, gangi, eldhúsi, baðherbergi, svefnherbergi og stofu með útgengi á svalir eignar. Verið er að ljúka við umfangsmiklum framkvæmdum á ytra byrði húseignarinar (steypu-, múrviðgerðir, tré- og blikkverk) og hlutur íbúðar að fullu greiddur. Falleg og vel skipulögð íbúð rétt við Laugardalinn. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@aldirfasteignir.is


Nánari lýsing.
Anddyri: Flísar á gólfi, fallegur hvítur fataskápur. 
Eldhús: Falleg nýleg innrétting frá IKEA, gott skápapláss, góð vinnuaðstaða, uppþvottavél og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi eru korkflísar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum, eldri innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu. 
Svefnherbergi: Dúkur á gólfi, fataskápar innan herbergis og gluggi með opnanlegu fagi. 
Gangur: Parket á gólfi
Stofa: Parket á gólfi, rúmgóð og björt með útgengi á sér svalir eignar. 
Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 
Á bak við hús er stór sameignlegur garður og við húseignina eru sameiginleg bílastæði þar sem búið er að setja um hleðslustöðvar. 

Falleg íbúð í grónu hverfi þar sem sutt er í Laugardalinn og alla helstu þjónustu. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjofur@aldirfasteignir.is  
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringbraut 99
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
53 m2
Fjölbýlishús
211
904 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24
Opið hús:19. nóv. kl 12:15-13:00
Skoða eignina Borgartún 24
Borgartún 24
105 Reykjavík
53,3 m2
Fjölbýlishús
211
1173 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 70
Efsta hæð
Skoða eignina Skipholt 70
Skipholt 70
105 Reykjavík
52,6 m2
Fjölbýlishús
211
1120 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
Skoða eignina Snorrabraut 33
Efsta hæð
Skoða eignina Snorrabraut 33
Snorrabraut 33
105 Reykjavík
69,2 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin