Engjavellir 1, 221 Hafnarfjörður er björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með sérinngangi á 1. hæð í góðu fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2006. Um er að ræða 140,4 fermetra eign sem skiptist í anddyri, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu. Frábær staðsetning á góðum og fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 140,4 fm I Fasteignamat 2024 er 81.700.000,-
Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Innangengt á gestasalerni.
Stofa: Stór og
rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi út á verönd. Möguleiki er á að minnka stofuna og útbúa fjórða svefnherbergið.
Eldhús: Opið eldhús með eyju, hvítum innréttingum og góðu skápaplássi
Svefnherbergi I: Rúmgott með góðum fataskáp og útgengi á verönd. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svenherbergi III: Rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi I: Lítið gestasalerni innaf forstofu. Upphengt salerni, hvít innrétting og dökkar flísar á gólfi.
Baðherbergi II: Með sturtuklefa, baðkari og upphengdu salerni. Flísar í hólf og gólf.
Þvottaherbergi: Rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla: Innan íbúðar með góðu geymsluplássi. Flísar á gólfi.
Verönd: Afgirt verönd til suðurs og austurs. Möguleiki á að gera annan sólpall til norðurs.
Frábær fjölskylduíbúð á rólegum og góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu og verslanir.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Heiðrekur Þór aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið heidrekur@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal. Kynntu þér
fasteignaþjónustu Procura og
nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.