Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Baughús. Einstaklega fallegt og bjart einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum stað í Grafarvogi. Á neðri hæð hússins er auka fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi ásamt ca. 30 fm. herbergi einnig með sér inngangi. Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og stórum fataskáp. Úr forstofunni er komið inn í flísalagt alrými sem tengir saman alla hluta hæðarinnar. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Þar er snyrtileg, innrétting, baðkar og sturtuklefi. Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú, stórir skápar eru í hjónaherbergi. Eldhúsið er með nýlegri, fallegri innréttingu, þar er mikið skápapláss og virkilega góð vinnuaðstaða. Góður borðkrókur er í eldhúsinu. Borðstofan er rúmgóð og björt, þaðan er útgengt út á stórar svalir sem ná yfir tvær hliðar hússins. Stofan er virkilega rúmgóð og björt með stórum gluggum. Fyrir framan húsið er skjólgóð, aflokuð verönd sem er á milli hússins og bílskúrsins. Þar er heitur pottur og garðskúr. Á milli hæða er steyptur stigi. Niðri er stórt þvottahús og geymsla sem er ekki skráð inn í fermetratölu hússins. Neðri hæð. Fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi af gafli hússins. Þar eru þrjú rúmgóð herbergi, stórt miðrými sem skiptist í stofu og eldhús ásamt baðherbergi með sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Þarna er líka stórt ca. 30 fermetra fermetra herbergi, við hlið þess herbergis er baðherbergi með sturtuklefa. Möguleiki er á útleigu þar sem þetta herbergi hefur einnig sér inngang af gafli hússins. Stórt þvottaherbergi ásamt geymslu er á hæðinni sem er nýtt af efri hæð í dag, þetta rými er ekki inn í skráðri fermetratölu hússins. Garðurinn fyrir framan húsið er í sérlega góðri rækt. Þar er skjólgóður pallur / verönd með heitum potti og geymsluskúr. Tvöfaldur stór bílskúr er framan við húsið. Gönguhurð er í bílskúrinn á hlið hans. Gólfefni hússins eru parket og nýlegar flísar. Þetta er virkilega fallegt, vel skipulagt fjölskylduhús sem bíður uppá mjög mikla möguleika vegna auka íbúðarinnar. Húsið er á frábærum stað í húsahverfinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla íþróttastarfið hjá Fjölni.
Vantar allar gerðir eigna á skrá. fagleg og góð þjónusta. Nánari upplýsingar veitir: Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali Fasteignasalan Grafarvogi Sími 863-1126 josep@fastgraf.is www.fastgraf.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.