RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð við Sólvangsveg 1. Íbúðin er í vinsælu lyftuhúsi, vel staðsett fjölbýlishúsi sem ætlað er 60 ára og eldri.
Íbúðin er skráð 82,3 fm og henni fylgja góðar yfirbyggðar suðvestursvalir, sem eru ekki innifaldar í skráðum fermetrum eignarinnar. Frá svölunum er fallegt útsýni yfir bæinn, tjörnina og fjörðinn fagra.
Eignin hefur fengið viðhald og endurnýjun, m.a. er eldhúsinnrétting nýleg, parket nýlegt og falleg innrétting á baðherbergi. Íbúðin er björt, rúmgóð og einstaklega notaleg. Eignin er laus við kaupsamning.
*** Hér geti þið skoðað eignina í 3D umhverfi. ***
Verið velkomin að hafa samband varðandi frekari upplýsingar í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is. Lýsing eignar:Forstofa: Rúmgóð og björt forstofa með góðum fataskáp.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgangi á góðar yfirbyggðar suðvestursvalir. Þaðan er fallegt útsýni yfir tjörnina og bæinn.
Eldhús: Rúmgott eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum ásamt góðum borðkrók.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskápum.
Herbergi II: Gott og rúmgott herbergi með skáp, í dag nýtt sem sjónvarpsrými.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með nýlegri innréttingu, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél. Gluggi er á baðherbergi.
Geymsla: Góð geymsla er innan íbúðar. Auk þess með íbúðin hlutdeild í sameiginlegri geymslu með þremur öðrum íbúðum á hæðinni.
Sameign:Mikil og góð sameign er í húsinu og aðgengi gott. Gangar eru breiðir og rúmgóðir og á hverri hæð er lítil og notaleg setustofa fyrir íbúa. Á fyrstu hæð er sameiginlegur salur þar sem íbúum gefst meðal annars kostur á að kaupa/panta heitan mat í hádeginu.
Sólvangsvegur 1 býður upp á meira en fallega íbúð, hér er góð aðstaða, notalegt umhverfi og samfélag sem hentar einstaklega vel þeim sem vilja njóta þæginda og öryggis á góðum stað.
Virkilega falleg og áhugaverð eign í eftirsóttu fjölbýlishúsi sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.