Atvinnueign kynnir til leigu: 5.476 fm atvinnuhúsnæði að Fossaleyni 21 í Reykjavík. Eignin sameinar rúmgóða lagera, skrifstofur og þjónusturými og býður upp á mjög góða aðstöðu fyrir fyrirtæki með umfangsmikla lager- og dreifingarstarfsemi.
Laust eftir samkomulagi. VSK bætist við leiguverð.Lager- og vörumóttaka: Í húsinu eru tveir stórir lagerar með um 10–12 metra lofthæð. Sex gámahleðsludyr eru við eignina ásamt fleiri innkeyrslu- og vörudyrum. Fyrirkomulagið ásamt rúmgóðu hleðslusvæði gerir móttöku, meðhöndlun og afgreiðslu vara skilvirka. Gott athafnarými er umhverfis húsið fyrir stærri ökutæki og fjöldi bílastæða er á lóðinni.
Skrifstofur og starfsmannaaðstaða: Skrifstofur eru á nokkrum hæðum og þar er að finna rúmgóð vinnurými, fundaraðstöðu, kaffiaðstöðu og mötuneyti. Lyfta tengir hæðir hússins.
Skipting húsnæðis: Eignin samanstendur af tveimur meginbyggingum með tengibyggingu á milli. Í öðrum hlutanum eru um 1.200 fm lager og 460 fm skrifstofur á tveimur hæðum. Í hinum eru um 900 fm lager, 300 fm rými sem hefur verið nýtt undir kæli- og frystigeymslu og um 500 fm hleðslusvæði milli gámadokka og lagers. Skrifstofur á 2. og 3. hæð eru um 580 fm og 560 fm. Tengibyggingin er um 300 fm og nýtist sem geymslu- og stoðrými.
Kæli- og frystirýmið er ekki með virkum búnaði í dag en mögulegt er að koma því aftur í notkun með endurnýjun kæli- og frystibúnaðar.
Fossaleynir 21-23 hentar vel fyrir heildverslun, innflutnings- og dreifingarfyrirtæki, framleiðslu og aðra starfsemi sem þarf stór lager- og athafnarými samhliða góðri skrifstofuaðstöðu. Staðsetningin í Grafarvogi veitir greiða tengingu við helstu stofnbrautir og góða aðkomu fyrir vöruflutninga.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -