Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna:
Virkilega bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og góðum afgirtum palli við Breiðavík 5 í Grafarvogi.Um er að ræða 4ra herbergja íbúð með gluggum í þrjár áttir í litlu fjölbýlishúsi.
Eitt sérbílastæði tilheyrir íbúðinni en á reitnum er einnig byggingarleyfi fyrir 22,5 fm bílskúr samkvæmt fasteignayfirliti. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er við inngang.
Eignin skiptist í forstofu, hol/sjónvarpshol, eldhús, borðstofu/stofu, hjónaherbergi, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Um ca 40 fm afgirt verönd til suðvestur er út af stofu.
Húsið lítur vel út að utan og hefur hlotið gott viðhald.
Lóðin er fullfrágengin og falleg með góðri aðkomu og fjölda bílastæða.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isMyndbandshlekkur hér*Eigendur skoða skipti á minni eign 3ja herbergja í hverfum 110, 112 og 113.
*parketið var slípað fyrir ca 3 árum.
*Þakið var tekið í gegn 2025, einning er til ástandskýrsla fyrir húsið.
*Helluborð og bakaraofn voru endurnýju fyrir ca ári. NÁNARI LÝSING:Forstofa: með flísum á gólfi og skápum.
Hol/sjónvarpshol: með parketi.
Eldhús: með L-laga innréttingu með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Nýlegt helluborð og bakaraofn. Rúmgóð borðaðstaða er í eldhúsi og laus eyja sem hægt er að sitja við getur fylgt með.
Stofa/borðstofa: mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi út á afgirta u.þ.b. 40 fermetra verönd með skjólveggjum til suðvesturs.
Hjónaherbergi: parketlagt með fataskápum á heilum vegg.
Barnaherbergi1#: parketlagt með fataskápum.
Barnaherbergi2#: parketlagt með fataskápum.
Baðherbergi: með innréttingu með vaski, speglaskáp með ljósi, wc, baðkari, hægt er að setja sturtuklefa í hornið, flísalagt gólf og veggir og gluggi.
Þvottaherbergi: er innan íbúðar með flísalagt gólf.
Geymsla: er innan íbúðar með dúklögðu gólfi.
Sameign: við inngang íbúðar er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Stæði/bílskúrsréttur: sér bílastæði er á lóð með byggingaleyfi fyrir 22,5 fm bílskúr.
Niðurlag:Virkilega góð fjölskyldueign, vel staðsett þar sem sutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, verslanir og þjónustu.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala