Atvinnueign kynnir til leigu: 500 fm hágæða skrifstofurými í Grósku – samfélagi nýsköpunar. Um er að ræða eina metnaðarfyllstu skrifstofubyggingu landsins þar sem í boði eru hágæða skrifstofurými þar sem mikið hefur verið lagt upp úr loftgæðum og góðri hljóðvist.
Laust eftir samkomulagi. VSK bætist við leiguverð. Í Grósku er lögð áhersla á að skapa umhverfi sem er hannað til að mæta öllum daglegum þörfum leigjenda undir einu þaki. Öflug fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum má finna í Grósku en þar er í boði fjölbreytt og sveigjanleg þjónusta.
Gott aðgengi að fundar- og ráðstefnurýmum, bæði fyrir daglega fundi og stærri viðburði. Næg bílastæði. Líkamsrækt og veitingastaður innanhúss, sem styður við daglegar þarfir og vellíðan. Öflugt og lifandi samfélag fólks og fyrirtækja af ólíkum stærðum og gerðum. Sterkt nýsköpunarumhverfi þar sem hugmyndir, samstarf og þróun fá að blómstra.
Hátíðarsalur Grósku er tilvalinn fyrir ráðstefnur, fyrirlestra og fjölbreytta viðburði. Fyrir utan salinn er opið rými sem hentar vel fyrir móttöku og veitingar við fallegan gróðurvegg Grósku.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
847-7700 -
olafur@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -