BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS - Hlynur, s. 698-2603. Ársæll 896-6076.
Hraunhamar kynnir: Tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara á frábærum stað við Skyggnisbraut í Úlfarsárdal. Íbúð 403 er 65 fm með geymslu.
Eignin afhendist fullbúin án gólfefna nema á votrýmum og með innréttingum frá Parka.
Um er að ræða skemmtilega íbúð á fjórðu hæð með góðum suðursvölum í nálægð við fallega náttúru. Afhending í maí 2023 eða fyrr.
Skipting eignarinnar: Forstofa, samliggjandi eldhús og stofa, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymsla.
Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp.
Opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.
Eldhús með smekklegri innréttingu og vönduðum eldunartækjum.
Björt
stofa þar sem er útgengt á suðursvalir.
Svefnherbergi með fataskápum.
Flísalagt
baðherbergi með þvottaaðstöðu, innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Þetta er falleg og vel skipulögð íbúð með vönduðum innréttingum frá Parka og eldunartæki frá Gorenje.
Skyggnisbraut 5 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur inngarður mun tengja húsin saman. Í stigaganginum eru 16 íbúðir.
Fjarðarmót er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi.
Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars:
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s:896-6076, arsaell@hraunhamar.isHelgi Jón Harðarson, sölustj. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023.
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár. – Hraunhamar.ishttps://www.facebook.com/hraunhamar
https://www.instagram.com/hraunhamar/