Nes fasteignasala ehf kynnir:
Sóleyjarklettur 10, 310 Borgarnes íb. 102. Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í nýlegu tveggja hæða fjölbýlishúsi, byggt 2022 úr forsteyptum einingum. Eignin er 83,86 fm ásamt 6,6 fm sérgeymslu á geymslugangi á jarðhæð, samtals stærð 90,2 fm skv. skráningu FMR.
Gólf á baðherbergjum eru flísalögð en önnur gólf með harðparketi. Innréttingar eru frá AXIS, parket á gólfum frá Birgison og flísar frá Álfaborg.
Nánari lýsing:Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi, 3 svefnherbergi og rúmgott alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu, útgengt er út á lóð úr stofu.
Anddyri: Flísar á gólfi, góður fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfum, rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Góð innrétting, upphengt salerni og walk-in sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Parket á gólfum, rúmgóð innrétting frá AXIS með efri og neðri skápum, ofn í vinnuhæð, helluborð og vifta. Mikið skápapláss og gott vinnurými.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfum. Björt og rúmgóð.
Nýleg og vönduð íbúð í nýju spennandi hverfi í Borgarnesi.Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.