Fasteignaleitin
Skráð 28. feb. 2025
Deila eign
Deila

Þórsgata 16

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
72.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.000.000 kr.
Fermetraverð
1.177.285 kr./m2
Fasteignamat
72.350.000 kr.
Brunabótamat
36.050.000 kr.
Mynd af Rúnar Örn Rafnsson
Rúnar Örn Rafnsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1950
Fasteignanúmer
2007632
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Kominn er tími á að skipta um nokkra glugga í stofu (sem áður var sólstofa).
Undirstykki (timbur) við gólf í gluggum í stofu eru ónýt, þau þarf að skipta um.
(hugmyndin var að skipta út þessum stykkkjum og heilklæða veggina að neðanverðu)
Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Þórsgötu 16a - hugglegt og vel skipulagt einbýlishús

** EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA **

Hér er um að ræða lítið og huggulegt einbýli (bakhús) á Þórsgötunni. Eignin er skráð skv. þjóðskrá 72,2 m² og er byggt úr holsteini og timbri.
Við húsið er stór nýlegur sólpallur, heitur pottur og lítill nýbyggður verkfæra/geymsluskúr.
Skv. fasteignaskrá er húsið byggt árið 1950, en rétt er að það er byggt í kringum 1922. Síðar var byggt við það að austanverðu (forstofa og baðherbergi) og enn síðar var sólskála bætt við húsið, sem nú hefur verið endurbyggður og breytt í stofu.

Aðkoma að húsi er frá Þórsgötu, en þaðan er gangstígur í gegnum lóð húss nr.16 sem stendur við götuna.

Nánari lýsing:
Forstofa: Er mjög rúmgóð, flísalögð og með góðum fataskáp.
Stofa/ borðstofa: Eru í nýlegri viðbyggingu sem áður var sólstofa. Mjög bjart og huggulegt rými með flísalögðu gólfi. Úr stofu er gengið út á sólpallinn og einnig í heita pottinn og geymsluskúr.
Eldhús: Parket á gólfi, falleg viðarinnrétting og gaseldavél. Panelklæddir veggir.
Hol / gangur: Parketlagt rými fyrir miðju húsi. Góður nýlegur geymsluskápur. Stigi úr þessu rými upp á geymsluloft / svefnloft.
Svefnherbergi 1: Er rúmgott, með parket á gólfi og nýlegum skáp.
Svefnherbergi 2: Gengið er úr eldhúsi í þetta parketlagða herbergi. Panelklæddir málaðir veggir.
Baðherbergi: Er rúmgott og gengið í það frá forstofu. Flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting, sturta, salerni og góð innréting fyrir þvottavél. 
Geymsluloft / svefnloft: Gott rými yfir meirihuta hússins. Búið er að opna upp í þetta rými með stiga úr holi /gangi, og útbúa þakglugga sem gjörbreytir nýtingarmöguleika  og birtu rýmisins.

Heildarlóðin er skráð 329 m², sem deilist millli húsa 16 og 16a. Sér afnotaréttur er yfir helming lóðarinnar, auk umgengnisréttar á hinum hlutanum (við þórsgötuna).
Nýlegur og stór pallur er við húsið (sagður 56 m²). Pallurinn er vel afgirtur og því mjög skjólgóður.

Þessi eign er á frábærum stað í 101 Reykjavík. Stutt í alla grunnþjónustu og allt það sem miðborg Reykjavíkur hefur upp á að bjóða.


Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/06/202151.500.000 kr.56.900.000 kr.72.2 m2788.088 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin V1 íb 508
Opið hús:30. mars kl 13:00-14:00
Vesturvin V1 íb 508
101 Reykjavík
71.1 m2
Fjölbýlishús
211
1172 þ.kr./m2
83.300.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 405
Opið hús:30. mars kl 13:00-14:00
Vesturvin V1 íb 405
101 Reykjavík
71.8 m2
Fjölbýlishús
211
1152 þ.kr./m2
82.700.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 23
Skoða eignina Tryggvagata 23
Tryggvagata 23
101 Reykjavík
80.8 m2
Fjölbýlishús
211
1100 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 79
Skoða eignina Sólvallagata 79
Sólvallagata 79
101 Reykjavík
87.5 m2
Fjölbýlishús
312
1005 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin