Helgamagrastræti 12 - Stór og vel staðsett eign með mikla möguleika - Stærð 226,1 m².
Eignin er skráð á tvö fastanúmer, efri hæð 214-7270 og neðri hæð 214-7271. Eignin er einkar vel staðsett og væri tilvalin fyrir rekstur á gistiheimili eða til útleigu.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:
Kjallari: Tvö íbúðarherbergi, þrjár rúmgóðar geymslur, þvottahús og baðherbergi.
1. hæð: Eldhús, tvær stofur, tvö svefnherbergi, gangur og baðherbergi.
2. hæð: Eldhús, tvær stofur, tvö svefnherbergi, gangur og baðherbergi.
Kjallari:
Gæti nýst sem útleigurými, þar eru skráð tvö íbúðarherbergi og eru þau bæði með gráum flísum á gólfi, í öðru þeirra hefur verið komið upp eldunaraðstöðu. Bæði eru með glugga til austurs.
Geymslur eru skráðar þrjár og eru tvær einkar rúmgóðar og gætu nýst sem herbergi, gráar flísar eru á einni geymslu en parket er á hinum tveim, gluggar eru í þeim öllum.
Þvottahús er með flísum á gólfi og geymsluskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, þar er wc, vaskur og sturtutæki.
1. hæð:
Eldhús er með málaðri eldhúsinnréttingu, þar er ný eldavél með ofni. Korkur er á gólfi.
Stofur eru tvær en í dag er önnur notuð sem svefnherbergi, stofan er nokkuð rúmgóð með harðparketi á gólfi og er þaðan útgengt á steyptar svalir til suðvesturs, af svölum er gengið niður í sameiginlegan garð.
Svefnherbergi eru því í dag þrjú talsins, tvö þeirra eru með nýlegu harðparketi og skápum, þriðja er með plasparketi á gólfi.
Gangur tengir öll rými íbúðarinnar saman og þar er harðparket á gólfi, á gangi er innbyggður fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
2. hæð:
Eldhús er með góðri nýlegri innréttingu, þar er spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur með frysti. Vínylparket er á gólfi.
Stofur eru tvær en í dag er önnur notuð sem svefnherbergi, stofan er nokkuð rúmgóð með vínylparketi á gólfi og er þaðan útgengt á steyptar svalir til suðvesturs.
Svefnherbergi eru hér einnig því þrjú talsins, öll eru með vínylparketi á gólfi og fataskápar í tveimur.
Gangur tengir öll rými íbúðarinnar saman og þar er vínylparket á gólfi.
Baðherbergi er með hvítri rúmgóðri innréttingu, sturtuklefa og wc, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Annað:
- Stutt er í grunnskóla, menntaskólana, sundlaug Akureyrar og göngufæri í miðbæinn.
- Eigendur skoða skipti á annarri eign.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.