Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna í einkasölu eignina Holtsvegur 57, 210 Garðabær.
Gullfalleg og mjög vel skipulögð þriggja herbergja 89,6 fm. íbúð, merkt 103, á fyrstu hæð í fimm hæða lyftufjölbýli við Holtsveg 57, 210 Garðabæ.
Íbúðinni tilheyrir 25,5 fm sérnotaflötur/verönd með svalalokunar kerfi.
Sér þvottahús er inn af baðherbergi. Íbúð er með geymsluskáp innan íbúðar.
Harðparket á gólfi að undanskildu baðherbergi og þvottarými sem eru flísalögð.
Gólfhiti er á allri íbúðinni og góð lofthæð. Björt og falleg eign.
Nánar um íbúð:
Komið er inn í hol með fataskápum og geymsluskáp. Harðparket á gólfi.
Stofa og eldhús í björtu og rúmgóðu alrými með harðparket á gólfi og útgengi út á 25,5 fm. hellulagða verönd ( sérafnotaflötur íbúðar ) með svalalokunar kerfi.
Hvít innrétting í eldhúsi með bæði efri og neðri skápa. Í eldhúsi er helluborð, fjölvirkur bakarofn með blæstri. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Tæki eru frá Electrolux.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með fataskáp og harðparket á gólfi.
Baðherbergi er með hvíta innréttingu með handlaug og speglaskáp þar fyrir ofan. Sturta eru flísalögð og með gler á einni hlið. Upphengt salerni og handklæðaofn. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi með tengingar fyrir þvottavél, innréttingar eru með þeim hætti að þvottavél/þurrkara er lyft upp í vinnuhæð með skúffur fyrir neðan.
Allar innréttingar eru frá HBH. Innihurðir eru yfirfelldar og rennihurð innfelld í vegg.
Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.