LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:Um er að ræða mjög fjölskylduvænt átta herbergja 232.4 fm parhús á þrem hæðum á þessum rólega og vinsæla stað Fossvogsdalsmegin í Kópavogi.
Eignin býður uppá möguleika að útbúa íbúð í kjallara með sérinngangi og stendur á jaðarlóð ofan götu innst í botnlanga.
Afgirtar, vandaðar og vel frágengnar verandir eru til suðurs og austurs við húseign.
Mjög gott vandað og fjölskylduvænt parhús á frábærum stað sem að fengið hefur mjög gott viðhald og endurnýjun.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúðarrými er 202.6 fm auk geymslurými á efstu hæð, merkt 01-01-01 og bílskúr er 29.8 fm merkt 01-00-02 samtals 232.4 fm.
Að auki er geymsluskúr á verönd sem að ekki er skráður.Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
sveinn@landmark.isFÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í:Aðalhæð skiptist í: Forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, gestasalerni, þvottahús úr holi er steyptur stigi uppá efri hæð og niður í kjallara.
Efri hæð skiptist í: Herbergjahol, fjögur svefnherbergi og aðalbaðherbergi, sitthorumegin ofan við hol er full nýtanlegt risloft sem að er opið inná herbergjahol.
Í kjallara eru: Tvö rúmgóð herbergi sem að eru bæði með glugga, salerni með klósetti, sérinngangur er inn í kjallara og þá er bílskúr í kjallara með geymslum innaf, möguleiki er að útbúa góða tveggja herbergja íbúð í kjallara með sérinngangi.
Miklar verandir til suðurs og austurs með vatnsheldri útigeymslu.
Nánari lýsing á eign:Aðalhæð:
Forstofa með góðum fataskápum.
Gestasalerni er innaf forstofu og er með flísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni og innrétting undir vask á salerni.
Hol þaðan sem að gengið er í önnur rými
aðalhæðar og er steyptur stigi á
efri hæð og niður í kjallara úr holi.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými, útgengi úr stofu á
afgirta verönd með góðum pöllum og er
heitur pottur (hitaveituskel) á verönd.
Eldhús er mjög rúmgott með snyrtilegri hvítri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og eldunareyju með góðu geymsluplássi,
innbyggð uppþvottavél í innréttingu, steinn frá
S.Helgasyni er í borðplötum,
Span helluborð og eru
norð-austur svalir út frá eldhúsi.
Innaf
eldhúsi er rúmgott þvottaherbergi og væri auðvelt að bæta við sturtuklefa á gestasalerni á kostnað þvottaherbergis.
Efri hæð:
Steyptur stigi er af aðalhæð og þar er komið uppá
herbergjagang.
Fjögur góð svefnherbergi eru á hæðinni og eru öll herbergi með Velux felligluggum, léttir fataskápar eru í tveim herbergjum og er eitt herbergið nýtt sem
fataherbergi.Aðal baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni, sturtuklefi með glerskilrúmi, góð innrétting er undir baðvask og rúmgóðir skápar á vegg, gluggi er á baðherbergi til austurs.
Góð
geymslu/leikrými eru sitthvoru megin ofan við herbergjagang á efri hæðinni sem að eru vel nýtanleg.
Kjallari:
Steyptur stigi er af aðalhæð niður í kjallara og þar er komið
á gang, einnig er
sérinngangur inní kjallara.
Sitthvoru megin við gang eru
tvö mjög rúmgóð herbergi og eru þau bæði með gluggum. Innaf gangi í kjallara er
salerni með klósetti.
Eldvarnarhurð er af gangi inní bílskúr sem að er mjög rúmgóður með góðri lofthæð,
rafdrifin bílskúrshurð og þriggja fasa rafmagn í bílskúr.
Gott
geymslurými er innaf bílskúr.
Ekki er ólíklegt að einhverjir fermetrar séu óskráðir innaf bílskúr.
Gólfefni: Harðparket (pergo) og flísar eru á gólfum húseignar.
Plan, garður og verandir:
Hellulögð verönd er framan við húseign og er snjóbræðsla í plani, bílastæði er fyrir fjóra bíla framan við hús.
Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur er framan við hús. Garðurinn er gróinn og alveg afgirtur, miklar verandir eru upp við húseign til suðurs og er heitur pottur (hitaveituskel) á neðri palli uppvið hús.
Vatnsheldur, aflokaður og einangraður geymsluskúr er við enda húseignar til austurs sem að nýttur er fyrir garðhúsgögn og garðáhöld..
Grasblettur er á miðri lóð til suðurs og svo er aftur verönd út við afgirta vegg.
Allur garðurinn og verandirnar eru til háborinnar fyrirmyndar hvað varðar frágang.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.isLandmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat