
Ásett verð miðast við 75% sameignarkaup.
Heima fasteignasala kynnir Valshlíð 3 – Íbúð 409.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Tilbúin til afhendingar.
Sameignarkaup — þú fjármagnar aðeins 75% af kaupverði: 65.175.000
Sameignarsamningur er undirritaður samhliða kaupsamningi.
Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar, þar sem þú færð aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum með rafrænum skilríkjum og getur gert tilboð beint. Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 583 2000. Hafðu samband og bókaðu skoðun.
2ja herbergja horníbúð á 4. hæð með suðursvölum. Birt stærð er 77,7 fm þar af 6,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie og gólfefni frá Álfaborg. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mói 1.
Nánari lýsing: Fataskápar í anddyri. Gengið er úr anddyri inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu með útgengi á suðursvalir. Eldhús með eyju. Taupe-grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa, blöndunartæki úr byssubláu stáli og innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi með fataskápum. Baðherbergi með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe-grá innrétting, speglaskápur með lýsingu og blöndunartæki úr byssubláu stáli. Afþiljuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla í kjallara merkt 0025 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingarfyrirkomulagi þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.
Um Hlíðarhorn
Hlíðarhorn er 3–5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 íbúðir, 2–5 herbergja. Hverri íbúð fylgja svalir, þaksvalir eða sérafnotareitur í innri garði, og íbúðirnar eru hannaðar með tilliti til náttúrulegrar birtu og nýtingar fermetra. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd álklæðningum í mismunandi litum ásamt við, með gluggum úr ál/við.
Hlíðarhorn er í 102 Reykjavík, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við fætur Öskjuhlíðar. Þjónusta, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða og stórir vinnustaðir eru í göngu- og hjólafæri.
Bílakjallari
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samnýttur samkvæmt deiliskipulagi. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnum íbúðum hefur verið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum; kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallarans samhliða kaupum.
Nánari upplýsingar
Á www.hlidarhorn.is má sjá allar íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni. Skilalýsing seljanda ásamt upplýsingum um hönnun og byggingu er einnig á heimasíðu verkefnisins.
Athugið
Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af endanlegu brunabótamati.
Auk kaupverðs greiðir kaupandi:
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
101 | 62,6 | 69,9 | ||
102 | 77,7 | 65,2 | ||
102 | 85,5 | 104,9 | ||
102 | 85,5 | 104,9 | ||
102 | 84 | 107,9 | ||
102 | 84 | 107,9 |