Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallegt einbýli á einni hæð, skráð 141 fm auk bílskúrs 33,6 fm samtals stærð 174,6 fm. Húsið stendur á afar fallegum, rólegum og veðursældum stað efst í enda botnlanga í Mosahlíðinni Hafnarfirði. Fagurt útsýni er frá húsinu, m.a. til fjalla. Rúmgóð verönd í suður með skjólgirðingum og heitum potti. Góð aðkoma og næg bílastæði. Að mörgu leyti einstök staðsetning. Húsið er laust strax. Eignin skiptist m.a. þannig: Forstofa með skáp, náttúruflísar,
hol/gangur, rúmgott fallegt bjart
eldhús með viðarinnréttingum, flísar á milli skápa, keramikhelluborð, fallegur
borðkrókur. Innangengt úr eldhúsi í sjónvarpsherbergi líka. Björt rúmgóð
stofa og sjónvarpsherbergi innaf (getur verið barnaherbergi ef vill) útgengt út á suður
verönd/pallinn og garðinn frá stofu.
Svefngangur: Rúmgott
þvottaherbergi með vaskaborði og hillum, flísar, útgengt á pallinn/í garðinn. Rúmgott
hjónaherbergi með skáp og
tvö góð barnaherbergi. Rúmgott
baðherbergi með viðarinnréttingu, flísar á gólfi og veggjum, baðkar og sturtuaðstaða, gluggar.
Parket á gólfum. Bílskúr er flísalagður, og er með hurðaopnara. Hellulögð aðkoma og bílaplan, hiti í hellulögðu bílaplani fyrir framan bílskúr.
Suðurverönd með skjólgirðingu, og heitum potti. Einnig hellulögð verönd með skjólgirðingu bak við bílskúr.
Garður er fallegur en þarfnast nokkurrar endurnýjunar líkt og húsið sjálft.
Nánari uppl. veita Helgi Jón Harðarson sölsutjóri s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is ogGlódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.