CROISETTE.HOME KYNNIR Í EINKASÖLU PENTHOUSE ÍBÚÐ Í VÍKURBRAUT 17 í REYJANESBÆ.
Falleg og vel skipulögð penthouse íbúð á tveimur hæðum með stórum þaksvölum á frábærum stað í Keflavík ásamt stæði í bílageymslu.
Eignin er alls 246,0 fm að stærð. Virkilega fallegt útsýni er úr íbúðinni til nánast allra átta.
Eignin er hægt að skoða hér í 3D:
Íbúðin afhendist í núverandi ástandi þ.e. fullbúin að utan og tilbúin fyrir tréverk að innan.
- Afhending við kaupsamning
- Einstök staðsetning með útsýni
- Gólfhiti á báðum hæðum
- Hitastilir í flestum herbergjum
- Merkt bílastæði í bílageymslu
1.hæð - anddyri, baðherbergi, stofu/eldhús, 2 svefnherbergi, þvottahús og yfirbyggðar svalir.
2.hæð - svefnherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol, geymsla og svalir.
Áhugasamir geta fengið upplýsingar og myndir af íbúðinni hliðiná til að sjá hvernig lokaútfærslan getur litð út.
Víkurbraut 17 er fjölbýlishús á 9 hæðum. Fyrst er bílageymslan með
innkeyrslu frá Bakkastíg þá geymsluhæð með geymslum og einni íbúð, 1.-5.
hæð með þremur íbúðum á hverri hæð og loks 6.-7. hæð með tveimur
penthouse-íbúðum. Lyfta er í húsinu og nær hún frá bílageymslu og upp á
6. hæð
Ytri frágangur og lóð
Húsið afhendist fullbúið að utan, lóð fullbúin svo og bílastæði. Að utan
er húsið einangrað með steinull og klætt með flísum, báruáli og sléttu
áli. Þak yfir 6. hæð og bílageymslu er steinsteypt með tvöföldum
pappalagi, einangrun, hitaspíral og hellulagt er þar ofan á.
Þak yfir 7. hæð sem er inndregin er klætt báruáli.
Svalir eru steinsteyptar, með hitaspíral og innfrarauðum geislahitara.
Handrið er úr áli og klætt hertu gleri sem er opnanlegt ofan handriðs.
Handrið á bílageymsluhúsi og á þaksvölum er steinsteypt.
Gluggar, svalahurðir og opnanleg fög eru málaðir trégluggar að innan með
álfölsum að utan og þreföldu gleri.
Aðalhurð er rafdrifin álhurð með skynjurum.
Lóð afhent fullbúin, bílastæði malbikuð. Hellulagðar stéttar eru fyrir
framan húsið og að anddyrum. Hitalögn er undir þeim. Rampur að
bílageymslu er upphitaður.
Nánari upplýsingar veitir Styrmir Bjartur Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 899 9090 eða styrmir@croisette.is og einnig í síma 569 9090 og allir@croisette.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
230 | 201.8 | 67 | ||
230 | 215.4 | 105,9 | ||
230 | 203.8 | 88,5 | ||
230 | 286.2 | Tilboð | ||
230 | 207.3 | 89,9 |